Beint í leiðarkerfi vefsins.
Jafnan er tekist á um skipulag skattkerfisins, hvort lækka skuli skatta eða hækka og þá hvaða skatta. Að sama skapi er deilt um afleiðingar breytinga á skattkerfinu. Skattar eru til þess fallnir að veita öllum samfélagsþegnum það sem þeir þurfa, óháð efnahag og aðstæðum. Skattar falla því undir félagslega ábyrgð.
Lesa meiraÁ dögunum, nánar tiltekið á þriðjudaginn þann 28. nóvember kom áhugaverð forsíðufrétt í blaðinu Blaðið. Var fyrirsögnin; „Bush biðjist afsökunar“. Í þessari grein fór Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mikinn í að úthúða þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að misnota góðvilja íslensku þjóðarinnar með því að setja hana á lista hinna viljugu og staðföstu þjóða.
Lesa meira