Ung vinstri græn
Pistlar

10.11.2006 Auður Lilja Erlingsdóttir

Þing Norðurlandaráðs æskunnar

Þing Norðurlandaráðs æskunnar var haldið í Kaupmannahöfn 27-29. október. Þingið er haldið árlega fyrir Norðurlandaráðsþingið og er hugsað sem tækifæri yngri kynslóðarinnar til að koma sínum hjartans málefnum og áherslum á framfæri áður en „eldri kynslóðin“ hefur þing sitt. Þetta er auðvitað gert í þeirri von að Norðurlandaráðsþingið taki upp og ræði einhver af þeim málum sem samstaða náðist um á þingi æskunnar. Það voru 55 fulltrúar sem sátu þingið að þessu sinni en þema þess voru atvinnumál og vinnumarkaðurinn.

Á föstudeginum 27. október gafst þingfulltrúum færi á að sitja þrjá fyrirlestra tengda þemanu. Peter Palshøj hélt fyrirlestur um hvað væri líkt og ólíkt með aðstæðum á vinnumarkaði landa Norðursins. Niels Paarup-Petersen talaði um samstarf Svía og Dana á Eyrarsundssvæðinu og þann árangur sem náðst hefur með samstarfinu sem og þau vandamál sem komið hafa upp. Ludde Enggren fjallaði svo um norrænu rannsóknarstofnunina NordForsk.

Á laugardaginn voru til umræða ályktanir sem lagðar voru fyrir þingið. Alls voru 25 ályktanir lagðar fyrir þingið. Hver ályktun var kynnt fyrir sig en að því loknu fengu þingfulltrúar færi á að ræða ályktanirnar í pólitískum hópum og vinnuhópum.

Á sunnudeginum voru 13 af þessum 25 ályktunum samþykktar. Margar af ályktunum má setja undir eina fyrirsögn, þ.e. Norðurlönd fyrir alla, en þingið samþykkti m.a. ályktanir um byggðastefnu og grundvallarmálefni eins og tjáningarfrelsi og réttindi samkynhneigðra.

Sú ályktun sem hlaut ef til vill mesta athygli á þinginu var ályktun þar sem Færeyingar voru gagnrýndir fyrir að veita ekki samkynhneigðum nægilega vernd í löggjöf sinni. Forsaga þessa er sú að Færeyska þingið felldi nýverið tillögu um að vernda samkynhneigða fyrir misrétti og hefur það haft í för með sér umtalsvert ofbeldi og ofsóknir á hendur samkynhneigðum í Færeyjum. Einnig var samþykkt ályktun sem fjallaði um aukinn rétt samkynhneigðra sem blóð-, sæðis- og eggjagjafa.

Aðrar ályktanir fjölluðu m.a. um mikilvægi þess að auðvelda fólki að flytjast á milli norrænu ríkjanna en slíkt væri hægt t.a.m. með því að auðvelda það að færa menntun og réttindi frá einu landi til annars. Norðurlandaráðsþing æskunnar taldi einnig að mikilvægt væri að öll heimili á Norðurlöndunum eigi kost á breiðbandstenginu og að á öllum svæðum Norðurlanda verði haldið í byggð með virkri byggðarstefnu. Hér má sjá allar samþykktar ályktanir og ítarlegri umsögn um þingið.

Í lok þingsins var kosin nýr forseti og stjórn. Tytti Seppänen frá finnska Miðjuflokknum var kosin forseti Norðurlandaráðs æskunnar næsta árið.

Hver stjórnmálahópur skipar einn aðila í stjórn og annan til vara. Eftirfarandi tilnefningar voru samþykktar:

Frá KDUN: Ole Henik Grønn, til vara Edvard Agrell
Frá NCF: Alexander Fosse Anderssen, til vara Minna Lindberg
Frá NUU: Lisbet Sejer Gøtzshe, til vara Páll Heimisson
Frá SUN: Runi Nielsen, til vara Auður Lilja Erlingsdóttir
Frá FNSU: Semine Lykke Brorson Petersen, til vara Marit Rolstad
Frá NLRU: Dennis Otte, til vara Elizabeth T. Erichsen
Frá FNUF: Mette Heide Sørensen, til vara Elise-Marianne Åberg

Samþykkt var að þema næsta þings verði jafnrétti og misrétti en næsta þing verður í Osló 28-30. október í Osló.

Auður Lilja Erlingsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica