Ung vinstri græn
Pistlar

8.11.2006 Erlendur Jónsson

Kvótaflokkurinn sækir á önnur mið

Að undanförnu hefur verið þónokkuð rætt um nýjasta útspil Frjálslynda flokksins. Það er mjög skiljanlegt í ljósi þess hvernig umræðan hófst. Hún hófst því miður á grein Jóns Magnússonar, eins forsprakka Nýs Afls, sem er nú runnið inn í Frjálslynda flokkinn.

Grein hans hét „Ísland fyrir Íslendinga?“. Meðal hluta sem hann talar um er að hann vilji ekki að múslimar flytjist hingað og einnig hinn ímyndaða pólítíska rétttrúnað. Í Silfri Egils síðastliðinn sunnudag var sýnt viðtal við hann. Fór hann þar á kostum í rugli sínu, enda hefðu margir talið að lögfróður maður ætti að vita betur en að tala um mismunun á grundvelli trúarbragða.

Það var þó miklu áhugaverðara að fylgjast með þeim umræðum sem upp spunnust á eftir viðtalinu. Þar sem mikið fór fyrir Magnúsi Þóri Hafsteinssyni, varaformanni Frjálslyndaflokksins, sem lýsti sig alfarið sammála Jóni. Það að alþingismaður sé samþykkur svona fordómarausi er hrollvekjandi. Það er einnig nokkuð ljóst eftir umræður síðustu daga að þetta er ekki eini aðilinn í þingflokknum eða forystuliði flokksins með þessar skoðanir.

Fordómar Jóns og Magnúsar Þórs munu líklega verða þess valdandi, að nauðsynleg umræða um innflytjendamál, mun sökkva niður í forarpytt útlendingafordóma og hræsni. Mikið er talað um „þetta fólk“ eins og að innflytjendur muni ávallt vera aðskildir frá íslensku þjóðfélagi. Það er eitthvað sem á aldrei að líðast, við eigum að bjóða hverjum þeim sem vill búa hér og verða hluti af íslensku samfélagi velkominn.

Einnig hefur verið umræða um að innflytjendur stuðli að lækkun launa á Íslandi. Það er einfeldningsháttur að tala einungis um launþega í slíku samhengi þegar ljóst er að um samspil allra aðila sem koma að málinu, þar með talin verkalýðshreyfingin. Hvernig vogar fólk sér að tala illa um launþega sem þiggur laun undir taxta, þegar sami einstaklingur hefur nærri því engin tækifæri til þess að kynnast réttindum sínum vegna vinnu, hvað þá berjast fyrir þeim.

Ég get ekki stimplað heilan flokk sem kynþáttahatara og illmenni, en þegar fyrirmenni í þeim flokki virðist vera að benda í þá átt til framtíðar, þá verður maður að spyrja sig, af hverju er verið að fiska eftir atkvæðum á jafnfúlum miðum og þessum hér?

Erlendur Jónsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica