Meðferðarúrræði fyrir landsbyggðina, takk!
Átraskanir á borð við lystarstol, lotugræðgi og lotuofát verða sífellt algengara vandamál á Íslandi. Sífellt fleiri veikjast af þessum skæðu sjúkdómum og er það talsvert áhyggjuefni.
Meðferðarúrræði fyrir átröskunarsjúklinga eru ekki mörg en í ár náðist langþráð markmið þegar ný deild fyrir átröskunarsjúklinga var opnuð á Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Umsóknir flæða inn og deildin annar varla eftirspurn enda eru sjúklingar alls staðar af landinu sendir til Reykjavíkur til að njóta þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa.
Neyðin á landsbyggðinni er líka stór og ferðin suður í meðferð getur reynst landsbyggðarfólki dýrkeypt. Samskonar úrræði er mikið þarfaþing á landsbyggðinni og það er afar raunhæfur kostur að opna almennilega átröskunardeild á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ung Vinstri-græn óska eftir almennilegri heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn, óháð búsetu.
