Ung vinstri græn

Pistlar

17.11.2006 Auður Lilja Erlingsdóttir : Hæfasti einstaklingurinn kosinn?

Kosningabaráttan er hafin og tími prófkjöranna er runninn upp. Sú umræða sem alltaf virðist fylgja prófkjörsbaráttu er á sínum stað. Umræðan um hvort það skipti máli að kjósa konur eða karla eða hvort markmiðið sé einfaldlega að kjósa hæfasta einstaklinginn óháð kyni.

Lesa meira
 

15.11.2006 Brynja Björg Halldórsdóttir : Stöndum vörð um kynfrelsið!

Það þarf vart að minnast á þær ógeðfelldu nauðganir sem hafa verið framdar nýlega, flestir lesendur hafa þegar heyrt á þær minnst - sem betur fer! Umfjöllunin sem þessi voðaverk hafa fengið í fjölmiðlum gefa það sterklega til kynna að almenn vitundarvakning hafi orðið í þjóðfélaginu. Ótal konum hefur verið misþyrmt á undanförnum árum, líklega mun fleirum en við getum gert okkur í hugarlund. Síðustu droparnir hafa fyllt mælinn, og almenningur hefur vaknað upp af vondum draumi.

Lesa meira
 

14.11.2006 Kári Páll Óskarsson : Gamla tóbakið

Þetta á ekki að vera andreykingagrein. Hér stendur ekki til að mála skrattann á vegginn um skaðsemi reykinga umfram það sem efni standa til. Hér er meiningin aðeins að fagna því að lög um reykingabann taki brátt gildi. Slík lög eru gæfuspor.

Lesa meira
 

10.11.2006 Auður Lilja Erlingsdóttir : Þing Norðurlandaráðs æskunnar

Þing Norðurlandaráðs æskunnar var haldið í Kaupmannahöfn 27-29. október. Þingið er haldið árlega fyrir Norðurlandaráðsþingið og er hugsað sem tækifæri yngri kynslóðarinnar til að koma sínum hjartans málefnum og áherslum á framfæri áður en „eldri kynslóðin“ hefur þing sitt.

Lesa meira
 

8.11.2006 Erlendur Jónsson : Kvótaflokkurinn sækir á önnur mið

Að undanförnu hefur verið þónokkuð rætt um nýjasta útspil Frjálslynda flokksins. Það er mjög skiljanlegt í ljósi þess hvernig umræðan hófst. Hún hófst því miður á grein Jóns Magnússonar, eins forsprakka Nýs Afls, sem er nú runnið inn í Frjálslynda flokkinn.

Lesa meira
 

6.11.2006 Freyr Rögnvaldsson : Þjóðernishyggja Frjálslynda flokksins er dauðans alvara

Magnús Þór Hafsteinsson er þingflokksformaður Frjálslynda flokksins. Þegar að Frjálslyndi flokkurinn kom fram á sínum tíma var litið á hann, með nokkurri réttu, sem eins máls framboð. Megin áhersluefni flokksins var andóf gegn kvótakerfinu og áhersla á málefni sjávarútvegsins.

Lesa meira
 

6.11.2006 Ástríður Pétursdóttir : „Gakktu hægt í þessum hraða og hávaðasama heimi og mundu hvaða frið þú getur fundið í þögninni“

Á tímum markaðshyggjunnar er þessi áminnig þörf fyrir okkur öll. Á þeim tímum þegar lífið snýst um hagnað og arðsemi. Þegar það þykir sjálfsagt að einstaklingar hafi margar milljónir á mánuði á meðan aðrir eru með rúmlega 100 þúsund krónur á mánuði. Þegar sumir verða stöðugt ríkari og aðrir fátækari þrátt fyrir þá staðreynd að öll lifum við á okkar sameiginlegu jörð og okkar sameiginlegu landgæðum.

Lesa meira
 

2.11.2006 Brynja Björg Halldórsdóttir : Meðferðarúrræði fyrir landsbyggðina, takk!

Átraskanir á borð við lystarstol, lotugræðgi og lotuofát verða sífellt algengara vandamál á Íslandi. Sífellt fleiri veikjast af þessum skæðu sjúkdómum og er það talsvert áhyggjuefni.

Lesa meira
 

Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica