Vitsmunalegt samhengi í skrifum Framsóknarmanna óskast!
Þann 9. október síðastliðinn birtist á vefsvæði ungra Framsóknarmanna, www.suf.is, grein um það hvernig Ómar Ragnarsson hefur rekið rýting í íslensku þjóðarsálina. Greinin er fyrst og fremst eftirtektarverð fyrir það hvað hún er áberandi illa skrifuð og óprófarkalesin. Einnig er þar frjálslega farið með staðreyndir og hugtök, greinin er án samhengis og ærumeiðandi fyrir þekktan einstakling í samfélaginu. Ritstjórn suf.is sýnir af sér fádæma metnaðarleysi og áhugaleysi í birtingu greinarinnar, því að ritstjórnin ætti að sjá sóma sinn að prófarkalesa það sem birtist á síðunni, að minnsta kosti lesa það! Við viljum góðfúslega benda ritstjórn suf.is á nokkur atriði, t.d. á kosti samsettra orða, að það er stórt A í Austurland og að þjóhyggja er ekki viðurkennt íslenskt orð (og ekki þjóðhyggja heldur, það er bara hluti af bullmáli Framsóknar). Metnaðarleysi ritstjórnar suf.is kemur ekki aðeins fram í málfarslegum þáttum greinarinnar, heldur einnig í því að í greininni koma fram ýmsar rangfærslur sem ritstjórnin vílar ekki fyrir sér að halda á lofti með því að birta greinina.
Fyrir það fyrsta hefur Ómar Ragnarsson aldrei gagnrýnt stjórnvöld fyrir atvinnuuppbyggingu á Austurlandi líkt og haldið er fram í greininni. Hann hefur hins vegar gagnrýnt þau fyrir skammsýni og náttúruspjöll. Pistlahöfundur kallar Ómar Ragnarsson ofsafenginn áróðursmann og sakar hann um ærumeiðingar. Með því að halda fram þessum rangindum gerist pistlahöfundur sjálfur sekur um ærumeiðingar á opinberum vettvangi, því ekki hefur Ómar haldið á lofti neinum ærumeiðingum heldur einungis tekið opinbera afstöðu gegn Kárahnjúkavirkjun eftir að hafa aflað sér gríðarmikillar þekkingar varðandi málið, og barist fyrir því sem hann trúir að satt sé og rétt. Pistlahöfundur leggur einnig til að skoðunum Ómars sé varúð sýnd, af að því virðist þeim ástæðum einum að hann er ekki sammála Ómari. Svo kemur hann með moldarkofalummuna frægu sem er orðin langþreytt og heimskuleg athugasemd í hræðsluáróðursbanka ríkisstjórnarflokkanna. Því að augljóslega er engan veginn hægt að setja samasemmerki á milli þess að vilja vernda landið sitt og að vilja búa í moldarkofa. Einnig skal því komið á hreint að Kárahnjúkavirkjun mun seint flokkast undir sjálfbæra náttúruauðlindanýtingu eins og pistlahöfundur heldur fram. Í sjálfbærni felst að komandi kynslóðir geti líka nýtt sér aðgerðirnar. Við efumst að komandi kynslóðir munu hafa mikið að gera við land sem hefur verið drekkt og uppþornað drullulón.
Pistlahöfundur segist að lokum syrgja góða manninn Ómar sem bar virðingu fyrir öðrum. Eftir þá vanvirðingu og dónaskapinn sem Ómari hefur verið sýndur í þessari grein er ekki að sjá að Framsóknarmenn sýni honum né öðrum andstæðingum Kárahnjúkavirkjunar neina virðingu sjálfir. Við syrgjum glataða virðingu, fyrir Ómari og öllum þeim sem dirfast að hafa aðrar skoðanir um hið umdeilda Kárahnjúkamál heldur en Framsóknarmenn. Við syrgjum glatað land sem hægt og rólega er að sökkva undir vatn í nafni skammsýni og valdahroka. Og síðast en ekki síst þá syrgjum við glataðan metnað Framsóknarmanna í meðferð íslensku tungunnar.
