Ung vinstri græn
Pistlar

18.10.2006 Elías Jón Guðjónsson

Afnemum launaleynd strax!

Á síðasta landsfundi sínum ályktuðu Ung vinstri-græn að afnema skuli launleynd hið snarasta. En af hverju?

Launaleynd felur í sér að launagreiðandi gerir samning um kaup og kjör við einstaka launþega sem samningsaðilum er óheimilt að upplýsa þriðja aðila um. Launaleyndin kemur því í veg fyrir að samstarfsfólk geti borið saman laun sín. Launagreiðandi hefur því yfirburðarstöðu þegar kemur að því að semja um laun enda hefur hann upplýsingar um laun allra launþega sinna. Launþeginn er aftur á móti í afar veikri stöðu þar sem hann þekkir aðeins sín eigin laun og hefur því engin viðmið þegar hann sest að samningaborðinu. Launaleynd hefur því þann ótvíræða kost fyrir launagreiðendur að hún hjálpar til við að halda niðri launakostnaði þeirra. Launaleynd er því í tæki sem launagreiðendur nota til að kúga launþega sína.

Launaleynd heldur ekki einungis niðri launum launþega heldur stuðlar hún að misrétti og mismunun á launamarkaði. Eins og fyrr segir þá kemur launaleynd í veg fyrir að samstarfsfólk geti borið saman launin sín. Því er ómögulegt að tryggja það að launþegum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, hárlitar eða bara geðþótta laungreiðenda vegna þess að launaleyndin felur misréttið.

Á Íslandi er fólki mismunað í launum á grundvelli kyns. Það er staðreynd að konur á Íslandi fá almennt lægri laun en karlmenn fyrir sömu eða sambærileg störf. Eflaust telja flestar konur sem vinna undir launaleynd sig hafa sömu laun og samstarfsmenn sínir af gagnstæða kyninu þó tölfræðin bendi til annars. Ef launaleynd yrði aflétt gætu þær auðveldlega komist að því hvort þær væru beittar misrétti og barist gegn því, sé það til staðar. Afnám launaleyndar myndi auk þess draga úr tortryggni á milli aðila á launamarkaði og auka gegnsæi hans.

Ung vinstri-græn eru með jafnrétti og á móti kúgun, misrétti og mismunun. Þess vegna viljum við afnema launaleynd strax.

Elías Jón Guðjónsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica