Stúdentaráð mælir með menntun, ég mótmæli stefnu stjórnvalda!
Í dag er hápunktur meðmælaátaks Stúdentaráðs Háskóla Íslands sem gengur undir yfirskriftinni ?Vér meðmælum öll?. Það kemur ef til vill engum á óvart að forsvarsmenn stúdenta séu hlynntir menntun en hvað það er sem knýr þá til að fara í sýnilegt átak til að auglýsa þessa skoðun sína er að mínu mati öllu merkilegra. Í yfirlýsingu Stúdentaráðs segir að umræða um háskólastigið hafi gjarnan haft á sér neikvæðan blæ og þetta átak sé til þess gert að nálgast málefnið á jákvæðan hátt, setja fram hugmyndir og útfærslur sem og að benda á leiðir til úrbóta sem gætu stuðlað að framförum á sviði háskólamenntunar.
Ég fagna átaki Stúdentaráðs og hvet alla til að mæta á "meðmælin" og ganga fylktu liði frá andyri aðalbyggingar Háskóla Íslands að Austurvelli klukkan þrjú í dag. Þetta er að minnsta kosti tilraun til þess að gera eitthvað. Á sama tíma undrast ég þó þessa nálgun sem Stúdentaráð hefur kosið að beita í þetta sinn og eiginlega mislíkar.
Þessi neikvæði blær sem forsvarsmönnum Stúdentaráðs segja hafa einkennt umræðu um háskólastigið á sér nefnilega, að mínu mati, afar auðskýranlegar orsakir. Orsakir sem ekki tengjast framferði, nálgunum eða vilja Stúdentaráðs Háskóla Íslands til að leita lausna. Orsakir sem rekja má til viljaleysis stjórnvalda til að bæta hag stúdenta og Háskóla Íslands. Í stað þess að mæla með menntun, sem ég held að flestir geri hvort eða er og þó er ástandið líkt og það er í dag, ætla ég því að nýta mér þetta frumkvæði Stúdentaráðs til að mótmæla stefnu stjórnvalda og hreint út sagt ömurlegri framkomu þess við þjóðarháskóla Íslands.
Ég mæli með menntun og betra menntakerfi. Stefna íslenskra stjórnvalda getur hvorki viðhaldið núverandi menntakerfi né bætt það. Þess vegna mótmæli stefnu íslenskra stjórnvalda í dag.
