Ung vinstri græn
Pistlar

11.10.2006 Kári Páll Óskarsson

Græna bylgjan

Eins og alþjóð veit var byrjað að safna vatni í Hálslón við Kárahnjúka fyrir hálfum mánuði. Í aðdraganda þess atburðar og samhliða honum hafa greinaskrif um svokölluð græn mál verið afar áberandi í öllum dagblöðum. En nú vill svo merkilega til að flokksmenn Vintrihreyfingarinnar ? græns framboðs eru ekki höfundar allra þessarra greina. Nei, einmitt þegar að hið umdeilda land er komið undir vatn er allt í einu eins og ógrynnin öll af náttúruunnendum séu að skríða út úr sínum skúmaskotum.

Þannig má t.d. sjá hvernig Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, hefur nú verið dubbaður upp sem ?hægri-grænn? stjórnmálamaður. Grein eftir grein um græn mál skrifaðar af Samfylkingarfólki birtast nú á síðum blaðanna, t.d. frá Dofra Hermannssyni og jafnvel frá Frú Kárahnjúkum sjálfri, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Og já, jafnvel Samband Ungra Framsóknarmanna hélt nýverið aðalfund og ályktaði þar um náttúruvernd. Allt í einu er náttúruvernd orðin það heitasta síðan brauðristar voru fundnar upp.

Hverju ætli hann sæti, þessi skyndilegi áhugi á íslenskri náttúru? Hvernig getur staðið á því að svona marg fólk, jafnvel fólk sem tilheyrir hópi þeirra 44 þingmanna sem samþykkti virkjunina á Alþingi á sínum tíma, er skyndilega orðið svona grænt í skoðunum? Getur það tengst því að komið hefur á daginn að það er heilmikið grænt fylgi þarna úti? Að þjóðin er klofin í tvær fylkingar eftir afstöðu sinni til framkvæmdanna? Vonandi ekki. Getur það verið?

Það er ótrúlega margt fólk úti í þjóðfélaginu, sérstaklega stjórnmálamenn, sem einfaldlega kunna ekki að skammast sín. Vinstrihreyfingin ? grænt framboð er eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur ávallt verið samkvæmur sjálfum sér í afstöðu sinni til Kárahnjúkavirkjunar (þó Frjálslyndi flokkurinn sé vissulega stundum ötull málsvari náttúrunnar). Vg hefur alltaf verið flokkurinn sem bent hefur á að framkvæmdirnar eru til komnar vegna skammsýni, græðgi og skorts á ímyndunarafli. Aðrir flokkar ættu að gera sér grein fyrir að þeir hafa engan trúverðugleika í þessum málaflokki og að gamlar syndir munu koma aftur til að ásækja þá.

Kári Páll Óskarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica