Ung vinstri græn
Pistlar

10.10.2006 Emil Hjörvar Petersen

Spekúlasjónir um hvers vegna kaup á vændi skulu gerð refsiverð

Á landsfundi UVG síðastliðnum, þann 9. september 2006, var samþykkt ályktun um vændismál. Í ályktuninni var meðal annars kveðið á um að vændiskaup skuli gerð refsverð og sektinni aflétt af þeim sem vændið stunda, og færð yfir á þá sem kaupa vændi. Hér verður farið nánar út í þá sálma og færð frekari rök fyrir málinu.

Fyrsta skrefið fyrir stjórnvöld er að viðurkenna tilvist vændis, og horfast í augu við það sem vandamál. Ef kaup á vændi er gert refsivert, minnkar það ósjálfrátt söluna vegna skorts á ?vörunni?. Þetta er því leið til þess að takast á við vandann. Aðstæður sem geta skapast ef sala er gerð refsiverð, eru til dæmis að ef kona er svívirt og nauðgað af kaupanda, hefur hún ekkert fyrir sér í því máli og getur ekki kært. Það er ekkert í réttarkerfinu sem gæti tekið á málinu. Verstu aðstæðurnar eru við mansal, en þar væri manneskjan nauðug seld í vændi, en svo gæti réttarkerfið ekki hjálpað viðkomandi á neinn hátt, ef upp kemst um málið.

Mótrök gegn því að kaup á vændi skuli gerð refsiverð eru mjög veik, því þau gera sjaldnast sem aldrei ráð fyrir þeim félagslegu þáttum sem spila inn í þegar manneskja fer út í vændi. ?Frelsi? og ?val? eru hugtök sem eiga ekki við hér; þessi kristölluðu hugtök frjálshyggjumanna, sem þeir hafa eignað sér og lagt einn skilning í. Það er ekki raunverulegt val hjá konu að leiðast út í vændi, sem hefur verið kynferðislega misnotuð, verið nauðgað áður, lagst í fíkniefnaneyslu af einhverjum ástæðum eða fleira. Ástæðurnar og forsendurnar eru óteljandi, hvort sem þær markast af félagsmótun, uppeldi eða sálfræðilegum þáttum. Og aðstæður sem þessar standa fyrir utan öll markaðslögmál. Enginn hægrimaður skal geta sagt okkur að vændi sé venjuleg atvinnugrein eins og hver önnur. Ónei, mikil fylgni er á milli glæpa, fíkniefna og vændis. Þetta er partur af undirheimastarfsemi.

Í nágrannalöndum okkar hefur sýnt sig að þessi aðferð, þ.e. að gera kaupin refsiverð, gera góða hluti ? til að mynda í Svíþjóð (almennt er talað um sænsku leiðina). Færri nauðgunartilvik koma upp og aðhaldið gegn vændi er meira. Vegna þess að kaupin eru bönnuð er eftirlitið meira, og hvatningin því meiri til þess að stunda ekki vændi. Eftir að stjórnvöld fóru að beina sjónum sínum að vandamálinu og viðurkenna vandann, er einnig meiri metnaður hjá þeim til þess að hjálpa þeim einstaklingum sem leiðast út í vændi, til dæmis með auknum atvinnutækifærum (ekki vændi) fyrir þá.

Í málaflokkum sem þessum gildir að líta á málið með opnum huga og beita skynsemi. Látum ekki markaðshyggjuna blinda okkur sýn. Mannlega hliðin virkar nefnilega langbest í mörgum tilvikum.

Emil Hjörvar Petersen

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica