Kristinfræðikennsla er tímaskekkja
Í því nútímasamfélagi sem við lifum nú í er það réttnefnd tímaskekkja að kennd séu lúthersk-trúarfræði í grunnskólum landsins. Kristinfræði, eins og hún kallaðist á árum áður, hefst í 1.bekk grunnskóla og fylgir nemandanum allt til fermingar. Börn fá nasaþefin af öðrum trúarbrögðum þegar nokkuð er liðið á skólaárin en námið hringsnýst allan tímann um mótmælendatrú og Þjóðkirkjuna. Með því er einstaklingum mismunað á sviði trúarbragða.
Ekki eru allir landsmenn lútherstrúar, hvað þá að allir séu yfirleitt kristnir. Mörg og misjöfn trúarbrögð eru við lýði hér á landi. Þau eiga öll sama rétt á sér og að þeim sé ekki mismunað í skólum landsins. Ekkert getur réttlætt þá mismunun. Öll treystum við þeirri ágætis stofnun sem grunnskólinn er til að sjá um æsku þjóðarinnar. Þar treystum við að þau fái góða og hlutlausa menntun. Sanngjarna uppfræðslu sem dregur ekki taum nokkurra stofnanna hér á landi né erlendis. Ung börn eru mjög móttækileg fyrir öllum þeim áróðri sem á vegi þeirra verður. Því á að hlífa þeim eins og kostur er við hvers kyns áreiti.
Á nýlega afstöðnum Landsfundi Ungra Vinstri Grænna, var einhliða trúfræðslu í skólum hafnað. Kynna ætti öll helstu trúarbrögð heims án hlutdrægni, ekki ætti að draga taum lútherstrúar. Jafnrétti skal ríkja milli trúarbragða. Nú í októbersbyrjun 2006 hefur Þjóðkirkjan stofnað til tveggja nýrra embætta og vígt svokallaðan skólaprest og skóladjákna til að starfa í grunnskólum landsins. Það er ljóst að ekkert lát muni verða á því trúboðsstarfi sem grunnskólinn hefur óbeðinn tekið að sér. Því er krafa Ungra Vinstri Grænna um að öllum trúarbrögðum sé gert jafn hátt undir höfði mjög réttmæt, tímanlega og mikilvægt innlegg í umræðuna.
