Ung vinstri græn
Pistlar

4.10.2006 Brynja Björg Halldórsdóttir

Yfirlit yfir nýtt vændisfrumvarp

Bjössi Bjarna,vinur okkar, er loksins farinn að taka við sér. Hann hefur greinilega pússað gleraugun sín og séð hvað lög um kynferðisafbrot eru meingölluð, halejúja, mazel tov ! Blessaður vinurinn hefur gert heiðarlega tilraun til þess að bæta ríkjandi ástand og lagt fram frumvarp þess efnis, sem ég hef verið að kynna mér undanfarið.Í frumvarpinu er  m.a. mælt fyrir að:

a) Upphaf fyrningarfrests kynferðisbrota miðist við átján ára aldur brotaþola en ekki fjórtán ár eins og nú er. Glæsilegt
b) Refsihámark fyrir kynferðislega áreitni gegn börnum verður hækkað þannig að brot gegn yngstu börnunum munu fyrnast á lengri tíma en nú er kveðið á um. Frábært.
c) Samræði og önnur kynferðismök við barn yngra en fjórtán ára verður þyngd og verða refsimörkin þau sömu og fyrir nauðgun; fangelsi frá einu ári og allt að sextán árum. Með því er lögð áhersla á alvarleika slíkra brota og teljast þá nauðgun og kynmök við börn yngri en fjórtán ára alvarlegustu kynferðisbrotin í stað nauðgunar einnar áður. Gott, gott.
d) Gert ráð fyrir að heimilt verði að lækka refsingu eða fella hana niður ef sá er gerist sekur um samræði eða önnur kynferðismök gagnvart barni yngra en fjórtán ára er á svipuðum aldri og þroskastigi og barnið. Skiljanlegt.
e) Hugtakið nauðgun verður rýmkað frá því sem nú er. Þannig er gert ráð fyrir að önnur kynferðis¬nauðung og misnotkun á bágu andlegu ástandi og því að þolandi getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans teljist nauðgun. Við það þyngist refsing vegna slíkra brota frá því sem nú er og verður fangelsisvist frá einu ári og allt að sextán árum, í stað fangelsis allt að sex árum nú. Stórkostlegt.
f) Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að refsing fyrir að stunda vændi sér til framfærslu verði felld niður og í staðinn gert refsivert að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum í opinberum auglýsingum. Torskilið. ?Verður vændi löglegt svo lengi sem það er óopinbert? Hvað með úrræði fyrir vændiskonur?
g) Enn fremur er í frumvarpinu almennt ákvæði um lögfestingu refsiábyrgðar vegna kynferðislegrar áreitni. Mjög gott.

Vinstri græn hafa ótal mörgum sinnum lagt fram frumvarp um vændi sem ekki hafa fengið brautargengi. Þetta frumvarp er ekki gallalaust en er skref í rétta átt.

Brynja Björg Halldórsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica