Ung vinstri græn
Pistlar

26.9.2006 Auður Lilja Erlingsdóttir

Ég ætla að ganga með Ómari

Ómar Ragnarsson á hrós skilið fyrir ósérhlífna baráttu sína til verndar náttúru Íslands. Þess vegna kýs ég að ganga með Ómari frá Hlemmi niður Laugarveginn klukkan 20:00 í kvöld. Ég geng til stuðnings þeirri baráttu sem Ómar hefur staðið í. Ég geng til verndar þeim náttúruperlum sem sökkva á undir fyrirhugað Hálslón.

Þó að ég kjósi að ganga með Ómari set ég ákveðna fyrirvara við hugmyndir hans um þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir þar sem ég er hreint ekki sátt við stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar og styð ekki álversuppbyggingu á landinu sama hvaðan orkan kemur. Ég geng í nafni fjölbreyttrar atvinnuuppbyggingar sem leyst gæti stóriðjuna af hólmi. 

Ég tek þó undir kröfu Ómars um að við horfumst í augu siðferðislegar skyldur okkar gagnvart landi og náttúru og hvet alla náttúruverndarsinna til að ganga með okkur í kvöld.

Auður Lilja Erlingsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica