Ung vinstri græn
Pistlar

20.6.2006 Kári Páll Óskarsson

Síðkosningakorn

Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé komin í ráðhúsið, þrátt fyrir að þessi meirihlutaómynd sé tekin til starfa, þrátt fyrir glæpinn sem framinn var gagnvart lýðræðinu með setu Framsóknar í borgarstjórn, þrátt fyrir mistæk gatnamót, gjaldtöku í leikskólum, ójafnrétti kynjanna og annan ósóma sem nýi meirihlutinn mun verða sér og borginni til skammar með, þá rita ég þessi orð með gleði í hjarta. Já, ég er bara ansi kátur eftir kosningarnar vegna þess að ég er svo ógurlega stoltur og ánægður með flokkinn minn. Litla, göfuga hugsjónaframboðið er enn göfugt, enn með hugsjónir, en ekki lengur lítið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð er nú þriðja stærsta stjórnmálaafl Íslands á landsvísu. Manni finnst það ekki einungis ánægjulegt af því að maður er sjálfur hluti af því, það gefur manni líka trú á kerfið. Og manni veitir sannarlega ekki af slíkri trú eftir að hafa horft upp á Framsóknarflokkinn sitja áfram að völdum, með valdasetu sem sitt eina málefni, sama hversu slæma kosningu hann fær. Þannig á þetta ekki að virka. Við höfum bestu málefnin og við fáum góða kosningu. Þannig á þetta að virka.

Við erum flokkur friðarstefnunnar, sem alltaf hefur barist gegn aðild Íslendinga að ógeðslegum stríðum í fjarlægum löndum. Hverjir eru á móti friði? Við erum flokkur kvenfrelsisins, sem fléttað hefur femínisma vandlega inn í alla sína stefnuskrá. Hverjir eru á móti kvenfrelsi? Við erum flokkur náttúrunnar, sem alltaf hefur verið of skynsamur til að spila með í stóriðjuleiknum því við vitum að stóriðja er versti kosturinn. Hverjir eru á móti náttúru? Og við erum flokkur velferðarinnar. Við stöndum til dæmis fyrir fjölmenningu öðrum flokkum fremur. Það er engin tilviljun að Toshiki Toma, prestur nýbúa, er vinstri grænn. Við stöndum fyrir hlunnfarna hópa samfélagsins eins og aldraða, öryrkja, og aðra sem fengið hafa að kenna á heilbrigðiskerfinu. Það er engin tilviljun að Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, og Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir, eru vinstri grænir. Eru einhverjir á móti velferð?

Hallgrímur Helgason skrifar skemmtilegan pistil (hann er jú alltaf svo skemmtilegur, hann Hallgrímur) í Fréttablaðið í dag, mánudag. Í pislinum gerir þessi knái og ötuli talsmaður (smá-) borgaralegra gilda kosningaúrslitin í borginni að umtalsefni og lýsir því þar af skerandi innsæi hvernig Vg, sá samansöfnuður sérvitringa og kommúnista, sé haldinn valdafælni og hugsjónablæti og hafi því fært D- og B-listum ráðhúsið á silfurfati með því að slíta R-listasamstarfinu. Ó Hallgrímur, visku þinni og hnyttni eru víst fá takmörk sett.

Það er þess virði að staldra aðeins við pistil Hallgríms, ekki vegna þess að hann sé bull, sem hann þó er, heldur vegna þess að hann er áhugavert bull. Í honum er Hallgrímur að gera nokkuð sem hans tegund, borgaranum, er mjög tamt að gera. Hann er að jaðra Vg, það er að segja reyna að ýta Vg út á jaðarinn, úr umræðunni, með sígildum borgaralegum meðulum. Þau ganga í stuttu máli út á að náttúruvæða hið óæskilega, óþægilega og erfiða konsept (í þessu tilfelli göfuga hugsjónaflokkinn Vg) með því að láta eins og saga hans sé ekki til, t.d. með því að segja að Vg sé hópur sérvitringa sem glopruðu borginni úr höndum sér, þegar hið rétta er að kominn var tími á R-listann og forsendur fyrir tilveru hans ekki lengur fyrir hendi. Þannig finnst borgurum gjarnan gott að neutralísera það sem ógnar þeirra flötu og sljóu ostaheimsmynd. Takið sérstaklega eftir því hvernig hann reynir að útmála hugsjónir sem eitthvað neikvætt fyrirbæri og sleppir alveg að tala um þær.

Nei, heimurinn er víst ekki alveg svo einfaldur. Í þessari flóknu veröld þar sem D-listi er áskrifandi að 40% fylgi, þar sem Framsókn situr við völd þrátt fyrir nánast ekkert fylgi, og þar sem kergjufullir borgarar eins og Hallgrímur Helgason vaða elginn, þarf oft að kosta ýmsu til í þeirri viðleitni að halda línum sínum hreinum, þær haldast ekki hreinar af sjálfu sér. Vinstri græn hafa staðið vörð um sínar hreinu línur og ég leyfi mér að fullyrða að enginn annar flokkur hefur málefni nærri því eins góð og okkar. Enda erum við stóra, göfuga hugsjónaframboðið. Áfram Vg!

Kári Páll Óskarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica