Ung vinstri græn
Pistlar

15.6.2006 Elín Sigurðardóttir

Hvar eru konurnar?

Nú er búið að skipa í ráð og nefndir borgarinnar. Því miður verð ég að segja að komi mér varla á óvart með þennan meirihluta hversu mikið hallar á konur. Alltaf heldur maður áfram að vona að jafnrétti náist í þessum málum. En ég er satt að segja búin að gefast upp á að bíða og vonast eftir að hlutirnir breytist.

Í borgarstjórn sitja sex konur af fimmtán borgarfulltrúum það eru 40%. Ef við skoðum fagráð borgarinnar er 41% þeirra sem þær skipa konur. En segir það alla söguna? Ef maður skoðar tölurnar nánar kemur í ljós að af borgarfulltrúum meirihlutans í fagráðum borgarinnar eru einungis 32%. Ef minnihlutinn er skoðaður kemur hins vegar í ljós að 52% þeirra fulltrúa eru konur. Merihlutinn svarar gagnrýni á hlut kvenna í borginni á þann veg að 41% aðal-og varamanna þeirra séu konur. Ég er ekki sátt við þau svör. Er það hlutverk kvenna í stjórn borgarinnar að sitja á ?varamannabekknum?. Hvers kyns jafnrétti er það eiginlega?

Borgin ætti að mínu mati að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum. Staða kvenna í borginni ætti að vera mun sterkari en hún er. Er ekki komið árið 2006? Hvað gerðist? Jafnrétti á pappírunum lítur alltaf vel út en hvar er það í raun? Er þetta ekki vísbending um að kvenfrelsisstefna Vinstri-grænna eigi fullt erindi í borgina? Núna er það á ábyrgð okkar sem tilheyra "ungu kynslóðinni" að breyta. Breyta áherslum í stjórn borgarinnar þannig að kvenfrelsi og aukin hlutur kvenna verði tryggður á okkar mannsaldri. Núna þarf meirihlutinn að láta verkin tala og mín krafa er: Kvenfrelsi núna!

Elín Sigurðardóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica