Ung vinstri græn
Pistlar

7.6.2006 Brynja Björg Halldórsdóttir

Hrókeringar og hræringar

Fátt hefur komið jafnoft til tals meðal landsmanna undanfarna daga eins og væntanleg umskipti í ríkisstjórn og stjórn Framsóknar. Síðastliðið mánudagskvöld tilkynnti Halldór Ásgrímsson afsögn sína sem forsætisráðherra og sem formaður Framsóknarflokksins. Ástæðuna fyrir þessari afdrifaríku ákvörðun sagði Halldór vera slæmt gengi flokksins í sveitastjórnarkosningunum, enda yrði hann að axla ábyrgð.

Fljótlega kom í ljós að veldissproti forsætisráðherra hafnaði í höndum Geirs H. Haarde, núverandiutanríkisráðherra. Enn er óvíst hver kemur í stað Geirs.Halldór var ekki lengi að finna nýjan mögulegan erfðaprins, nefnilega Finn Ingólfsson, fyrirverandi alþingismann og ráðherra. Prinsinn hafnaði formannskrúnunni að vísu, sagðist halda áfram sem formaður VÍS.

Þótt mikið hafi verið þrýst á Guðna Ágústsson, landbúnaðarráðherra að segja af sér sem varaformaður flokksins, hefur hann ákveðið að sitja sem fastast, allavega fram að flokkssþingi. Næst í goggunarröðinni eftir Guðna er Siv Friðleifsdóttir, ritari flokksins og ætti hún að verða varaformaður.

Boðað hefur verið til miðstjórnarfundar Framsóknar 9. júní næstkomandi. Verður staðan þá rædd. Einnig hefur Halldór beðið um að flýta flokksþinginu, helst til haustsins en þá verður kosið um nýja flokksforystu. Skal það liggja milli hluta, hvaða kandítdatar eru líklegastir, en Valgerður Sverrisdóttir telur sig álitlega,að minnsta kostiálitlegri en Guðni Ágústsson.

Banalega Framsóknar hefur lengi verið sýnileg og yfirvofandi. Þrátt fyrir nánast ósýnilegt fylgi, hefur flokkurinn alltaf samið um samstarf, oftast sem hækja sjálfstæðismanna og er því valdamesti flokkur landsins miðað við fylgi. Núna hefur flokksforystan um tvennt að velja: Að velja sér nýja og sterkari stjórn sem blæs lífi í fársjúkan flokkslíkamann eða deyja drottni sínum.

Brynja Björg Halldórsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica