Bílastæðagjöld hjá framhaldsskólum og háskólum
Ég heyrði nýlega í fréttunum að hugmyndir væru uppi um að setja bílastæðagjöld á bílastæði við háskóla og framhaldsskóla. Ástæða þess á að vera sú að bæta samgöngur í borginni. Ég er á móti þessari hugmynd.
"Ef bílastæðagjaldið yrði 4000 kr. mánuði, en það er lægsta mánaðargjaldið hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkur, þá þyrfti hver akandi stúdent að borga 36.000 kr. yfir skólaárið" - úr grein á heimasíðu SHÍ (Stúdentaráð Háskóla Íslands), student.is
Fæstir framhaldsskólanemar hafa efni á að missa þessa peninga til þess eins að borga bílastæðagjöld. Hvernig ætlast þeir annars til að þessu verði framfylgt? Á að fjölga stöðumælavörðum bæjarins og eyða þannig skattpeningum bæjarbúa? Leggja meira álag á þá stöðumælaverði sem þegar eru ráðnir hjá bænum? Það er spurning. Dettur þeim ekkert betra í hug til að bæta almenningssamgöngur? Já, reyndar.
Ég heyrði í sömu frétt að hugsanlega stæði til að stofna heimasíðu sem gengi undir nafninu ?Samferðir.is?. Þessi síða myndi staður þar sem fólk gæti fundið annað fólk sem væri að fara á sömu staði í bænum og þau. Þannig væri hægt að koma af stað ?samferða-áætlun?, það er að segja að fara á einum bíl í stað tveggja. Mér finnst þetta mjög góð hugmynd. Afbrigði af þessarri hugmynd var reynd úti í Bandaríkjunum. Þar var sérstök akrein sem var aðeins fyrir þá bíla sem hefðu fleiri en 1 farþega. Þessi tilraun gekk vel og sparaði því bensín bílaeigendanna (sem skiptust á að skutla hver öðrum) og umhverfið raskaðist minna vegna minni útblásturs. Þetta tel ég vera góða hugmynd til að draga úr umferðar álagi á morgnana og um kvöldin.
Önnur góð hugmynd sem gæti dregið úr umferð væri að fyrstu tímar framhaldsskóla og háskóla borgarinnar myndu ekki byrja fyrr en 8:20 eða 8:30. Málið er að allir eru að basla við að komast í vinnuna um 8 leytið á morgnana og á sama tíma eru nemendur framhaldsskóla og háskóla að reyna að mæta á réttum tíma. Ef að skólinn byrjaði ekki nema korteri seinna myndi umferðin á morgnan skána umtalsvert. Hver kannast ekki við að þurfa að bíða í 10 mínútur eftir að komast upp á Bústaðaveginn frá Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði? Hver nennir að sjá tvö græn ljós koma og fara á gatnmótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar vegna þess að bílaröðin er svo rosalega löng? Hvernig er hægt að ætlast til að allir komist úr Grafarvoginum og í vinnuna/skólann á morgnana gegnum "flöskuhálsinn", öðru nafni Gullinbrú?
Það að reyna að skikka fólk til að keyra minna með álagningu bílastæðagjalda finnst mér persónulega vera slæm hugmynd. Þetta mun ekki draga mikið úr ökuferðum nemanda, en þetta mun líklega skila meiri peningi til bæjarstjórnar. Hver var það annars sem lagði þetta til?
