Ung vinstri græn
Pistlar

25.5.2006 Baldvin Esra Einarsson

Framtíð þjóðar í fárra höndum!

Fyrir stuttu kom út sjálfshjálparbókin Draumalandið eftir rithöfundinn Andra Snæ Magnason. Bókin er mjög merkileg lesning vegna þess að þar er aðallega fjallað um Ísland eins og það er í dag og lesandanum látið eftir að ákveða hvert við stefnum. Tekin eru dæmi úr fortíð og samtíð og okkur gefnar vísbendingar um hvert er stefnt. Við erum spurð hvort við eigum að láta yfir okkur ganga eða ekki.

Fyrir mitt leyti langar mig ekkert að verða íbúi í álframleiðslulandinu Íslandi, frekar myndi ég vilja búa í landi möguleikanna. En ekki er allir á sama máli og þá helst þeir sem fara með stefnumál þjóðarinnar. Það eru þeir sem virðast ekki hafa lesið bókina og það eru þeir sem svara ekki þeirri gagnrýni sem drýpur af hverri síðu Draumalandsins. Þessi staðreynd virðist aðeins ýta undir það að ýmsir aðilar hafi óhreint mjöl í pokahorninu og vilji ekki ræða það á opinberum vettvangi.

Í Draumalandinu er vörpuð upp mynd af ráðamönnum sem virðast ekki bera hag þjóðarinnar í brjósti og æða áfram í orkunýtingarbrjálæði. Þeir segja að eina auðlind Íslendinga vera vatnsorku og að okkur beri að nýta hana. Andri og fleiri benda á aðrar auðlindir til að efla og bæta íslenska þjóð. Þar má helst nefna mannauðinn. Og Andri bendir á annað í bók sinni, en það er að með álframleiðsludraumum er öðrum draumum ýtt til hliðar. Möguleikum okkar til að þróa og bæta samfélagið er fækkað því leiðin sem ráðamenn og forstjórar stórfyrirtækja vilja fara er svo yfirgengin að hún kaffærir öðrum möguleikum í leiðinni og takmarkar framtíðarsýn okkar.

Látum ekki vaða endalaust yfir okkur og stöðvum þessa þröngsýni og heimsku áður en Ísland verður að nýlendu stórfyrirtækja sem eru hér aðeins til að græða af okkur.

Baldvin Esra Einarsson er formaður UVG á Akureyri og skipar fimmta sæti á lista VG á Akureyri.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica