Ung vinstri græn
Pistlar

22.5.2006 Elín Sigurðardóttir

Góðærið, fyrir hverja?

Fréttir af góðærinu og gengi markaðarins drekkja fjölmiðlum þessa daganna... ég er alltaf jafn hissa.

Ég spyr - hvar er þetta góðæri? Hverjir njóta góðs og hverjir gleymdust? Ég auglýsi hér með eftir þessu margumtalaða góðæri. Ef það er svona mikill hagvöxtur og svona mikið góðæri afhverju býr fólk þá við fátækt á Íslandi? Afhverju er aðbúnaður aldraðra á hjúkrunarheimilum ekki betri? Hversvegna eru umönnunarstörf svona illa launuð? Ef við erum svona rík hlýtur maður að draga þá ályktun að það sé einungis ákvarðanir stjórnvalda sem valda þessum félagslegu vandamálum. Ef nóg er til af peningum í landinu hlýtur þetta að snúast um í hvað við eyðum þeim? Ef það eru ekki til neinir peningar þá er varla góðæri og hagvöxtur. Þetta tvennt stangast á að mínu mati, er sem sagt búið að ákveða hverjir verði þátttakendur í góðærinu og hverjir fá að sitja eftir sáttir við sitt. Það getur varla talist ríkt land þegar gamalt fólk er látið dúsa frammi á gangi á sjúkrahúsum því ekki fæst fólk til að vinna á hjúkrunarheimilum. Fólk lítur ekki einu sinni á bleika fílinn í herberginu sem eru laun þess fólks sem vinnur á þessum stöðum.

Reykjavík tók af skarið með að hækka laun ófaglæðra á leikskólum og hvað gerðist? Þeir mönnuðu nánast allar stöður í kjölfarið, einfalt mál! Það að reyna að gera einfalda hluti flókna er að mínu mati blekkingarleikur stjórnvalda og því segi ég fjárfestum í fólki en ekki steinsteypu!

Elín Sigurðardóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica