Ung vinstri græn
Pistlar

18.5.2006 Auður Lilja Erlingsdóttir

Er þitt atkvæði til sölu?

Kosningar eru í nánd. Það fer ekki á milli mála. Björn Ingi hefur staðið í ströngu, hefur tekið miklum útlistbreytingum, er orðinn grannur, "tanaður" og kominn með prakkaralegt bros sem ekki bar á áður. Til að markaðssetja sig enn meira sem alvörugefið borgarstjóraefni splæsti flokkurinn í eitt stykki Hummer jeppa fyrir hann til að rúnta um bæinn á milli þess sem honum er lagt í fatlaðrastæði. Dagur heldur að hann viti svörin við öllu og virkar allt í einu að minnsta kosti tuttugu sentimetrum hærri en venjulega. Vilhjálmur kemur ef til vill helst á óvart. Hann hefur yfirgefið þá stefnu sem flestir kannast við sem stefnu Sjálfstæðisflokksins og stendur allt í einu fyrir lægri dagvistunargjöld og vill ekkert frekar en að hlúa að öldruðum. Slagurinn stendur um flugvöllinn og Sundabrautina og sá sem notast við tæknilegasta orðaforðann telur sig hafa unnið.

Er þetta það sem kjósendur vilja? Óskýran loforðaflaum um staðsetningu flugvallar sem hvort eð er ekki að fara neitt á næsta kjörtímabili og peningaustur í ímyndavinnu sem skilar litlu fyrir kjósendur. Það er vert að spyrja hvort að slík vinnubrögð komi til með að verða verðlaunuð með atkvæðum. Framsóknarflokkurinn sem hefur verið hvað öflugastur að auglýsa sig í fjölmiðlum, sérstaklega í sjónvarpi, virðist að minnsta kosti ekki auka við sig fylgið svo um muni. Sem betur fer virðist almenningur ekki ætla að láta kaupa sig í þetta sinn. En hvað er hægt að gera til að draga úr þessu brjálæði?

Er ekki kominn tími til að stjórnmálaflokkarnir opni bókhald sitt og bjóði kjósendum að skoða? Slíkt myndi verða til þess fallið að minnka áhyggjur af samskiptum fjársterkra aðila og stjórnmálamanna og vonandi draga úr þessum gríðarlegu fjárútlánum í aðdraganda kosninga. Það er einfaldlega ekki jákvæð þróun að sífellt meiri peninga sé þörf til að bjóða fram. Sú þróun leiðir á endanum til lýðræði þeirra fjársterku eða lýðræði þeirra sem hafa aðgang að fjármagninu á einn eða annan hátt. Það er ekki lýðræði að mínu skapi!

Mitt atkvæði er ekki til sölu.

Auður Lilja Erlingsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica