Skítt með þennan flugvöll!
Fjölmiðlar gera fátt annað en að argviðrast um þennan flugvöll, hvort hann veri eða fari. Þó vissulega sé gott að vita af því að fjölmiðlar fylgist með málefnum, yfirlýsingum og auglýsingum framboðanna, mega þeir gjarnan einbeita sér að meira en einu máli. Eins og staðan er í dag, virðist það vera sem svo að Framsókn hafi mótað umræðuna, reyndar ekki þeim til góðs þar sem tillaga þeirra virðist vera argasta flan. Vinstri græn standa sterk í flestum málaflokkum og sérstaklega þeim sem skipta gríðarlegu máli fyrir fólk næstu fjögur árin.
Það er stefna Vinstri grænna í málefnum aldraðra þar sem þeir koma fram sem einarður flokkur endurbóta, annað en ný tilkominn "áhugi" Sjálfstæðisflokksins. Það eru bættar almenningssamgöngur og aðrar samgönguleiðir eins og hjólastígar, sem veitir ekki af þar sem vinir einkabílsins virðast sprengja gatnakerfið á hverju ári.
Vinstri græn hafa staðið vel í þessum málaflokki á kjörtímabilinu og sést það sérstaklega á aukinni aðsókn í strætó.
Alvöru jafnrétti milli kynja er ekki eitthvað sem var fundið upp korteri fyrir kosningar hjá Vinstri grænum. Strax frá byrjun var stefna flokksins sett á þetta brýna málefni og er best að vitna í síðasta landsfund þar sem kvennfrelsi var sett í málefnaskrá VG. Það eru leikskólamálin, með það í fararbroddi að allir sem einn sitji á sama borði og hafi fyrir alvöru efni og getu á að senda barnið sitt í leikskóla.
Eins málefnaumræða er sama og dauð umræða. Minnkandi áhugi kjósenda á nýtingu síns borgaralega réttar byggist fyrst og fremst á því að alltaf er verið að staglast með sama málið. Og þegar rætt er um það sama er iðulega það sama sagt. Þrátt fyrir að undirritaður sé einstaklega þolinmóður maður þá getur líka hann orðið þreyttur á að heyra orð á borð við:
Vatnsmýrin, flugvöllurinn fer ekki fyrr en 2016, Reykjavíkurflugvöllur, fimmtán þúsund nýjar íbúðir í Vatnsmýrinni, Löngusker og þekkingarþorp í Vatnsmýrina. Öllu má ofgera. Hvernig væri að fá að heyra í fleiri málaflokkum. Vissulega yrði það vandasamt fyrir hina flokkana en Vinstri græn þyrftu yfir littlu að kvíða.
