Ung vinstri græn
Pistlar

24.4.2006 Baldvin Esra Einarsson

Pólitískt bull og hagvöxtur

Fyrir nokkru helti undirritaður sér út í pólitískt starf. Á skömmum tíma var ég kosinn formaður ungliðahreyfingar VG á Akureyri sem og hlaut 5. sæti á framboðslista VG á Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Á skömmum tíma stendur upp úr hversu þetta umhverfi, það er pólitískt umhverfi, getur virst fráhrindandi fyrir ungt fólk nú til dags. Hugtakið pólitík er nægjanlega fráhrindandi í sjálfu sér til að hrekja flesta sómakæra einstaklinga á brott. Í hugum margra þýðir það aðeins þras, bull, spilling og leiðindi. Svo finnst okkur sem erum í pólitísku starfi alltaf svo skrýtið að fólk hafi ekki áhuga á því sem við stöndum fyrir. Og hvað stöndum við fyrir? Vinstri græn eru að mati almennings ruglaðir blómálfar sem eru á móti hagvexti. Samfylkingin er að breytast í hægri krata, hvað svo sem það er. Sjálfstæðismenn eru kapítalísk svín sem vilja einkavæða allt og Framsókn er deyjandi bændaflokkur og búinn að vera það í marga áratugi. Þannig birtist þetta hið minnsta í fjölmiðlum og í umræðu almennings. Og svo finnst okkur sem erum í pólitísku starfi alltaf svo skrýtið að fólk hafi ekki áhuga á því sem við stöndum fyrir. Það er ekkert svo skrýtið ef litið er á málin frá þessari hlið. Enginn heilvita maður myndi snerta pólitík með priki ef hann hefði þessar hugmyndir um hana.

Hvað er til ráða?
Þegar stórt er spurt... stendur ekki á svörum frá pólitíkusum. Þeir bulla og svara í hringi og enda á spurningunni, ?hvað ætlar þú að gera fyrir fólkið sem er atvinnulaust á Húsavík??. Það sem þarf að breytast er pólitíkin sjálf og umræða innan hennar. Breyta þarf hugmyndum fólks um pólitík. Pólitík hefur lengi snúist um baktjaldamakk, þras, bull og fölsk loforð og það er ástæða þess að hugtakið er neikvætt. Ef þessu er ekki breytt og fram heldur sem horfir verður ekki um þátttöku­lýðræði að ræða hér á landi heldur gervilýðræði líkt og virðist vera viðgangast í Bandaríkjunum. Þegar fólk missir áhuga á umræðunni, missir það áhuga á framboðum til kosninga og að lokum áhugann á því að kjósa. Það sem er til ráða að líta í eigin barm og taka ekki þátt í pólitík sem snýst um þras, falsloforð, baktjaldamakk og bull. Breyta þarf umræðunni í eitthvað sem er satt, réttlátt og umbúðalaust. Vinstri græn eru til dæmis ekki hópur rugludalla sem er á móti hagvexti og hinir flokkarnir hafa margt jákvætt fram að færa. Ég ætla samt ekki að fara svara fyrir þá hér, þeir geta gert það sjálfir.

Fyrir hvað stend ég?
Ég er ekki blómálfur sem er á móti hagvexti. Ég er hins vegar á móti því að umhverfi okkar sé eyðilagt og skaðað fyrir skammtíma hagsmuni. Stóriðja er ekki eina leiðin til að auka hagvöxt. Það að vera á móti stóriðju er ekki að vera á móti hagvexti. Hagvöxtur er mælieining á hversu mikið tekjur landsmanna aukast á milli ára. Eins og við öll vitum þá er hægt að vinna sér inn tekjur annarstaðar en í álverum og virkjunum og ef við aukum þessar tekjur þá eykst hagvöxtur. Ef ég fæ launahækkun þá eykst hagvöxtur. Ef ég stofna fyrirtæki og ræð vin minn í vinnu þá eykst hagvöxtur. Ef ég missi vinnuna aftur móti eða fer á hausinn þá minnkar hagvöxtur. Ég er með hagvexti. En mér þykir líka vænt um umhverfið mitt og landið mitt. Ef ég ætti að velja á milli 1% hagvaxtar árið 2007 eða að Skjálfandafljót verði áfram til í núverandi mynd næstu 100 árin þá myndi ég velja Skjálfandafljót. Þó svo að ég hafi ekki séð allt landið mitt vil ég geta séð einhvern hluta af því einhvern tímann og mitt að velja að sjá það en ekki hvort staðurinn sé enn til eður ei.

Baldvin Esra Einarsson
Formaður UVGA og situr í 5. sæti framboðslista VG á Akureyri

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica