Til hamingju með brotthvarf hersins!
Eftir þriggja ára gamla aðvörun þess efnis, þá er herinn nú loksins að drattast burt af Miðnesheiði eins og frægt er orðið. Því ber að sjálfsögðu að fagna eins og Íslendingar hafi unnið nóbelsverðlaun, óskarsverðlaun og heimsmeistaramótið í handbolta allt í einu, og skjóta tappanum úr hverri einustu freyðivínsflösku sem fyrirfinnst innan íslenskrar lögsögu, enda er þetta stórt skref í að fjarlægja okkur frá þeim bókstafstrúarmönnum, heimsvaldasinnum og fasistum sem fara með völd í Washington D.C. og auka þar með öryggi okkar gagnvart ofbeldi umheimsins.
Þegar þessar síðustu þotur og þyrlur eru farnar, þá munu standa eftir 400.000 fermetrar af ónýttu landsvæði, og atvinnulausir Suðurnesjamenn sem þurfa að súpa seyðið af trassaskap ríkisstjórnar þeirra sem hefur ekkert gert til að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf á svæðinu þrátt fyrir að hafa haft til þess þrjú ár. Eftir stendur sömuleiðis sú hrópandi sorglega staðreynd að þyrlufloti okkar er langt frá því að geta komið fólki í neyð til bjargar, og þar með að geta tryggt hið raunverulega öryggi okkar, eina öryggið sem Íslendingar þarfnast í raun. Það þarf nefnilega enginn að velkjast í vafa um það: Íslendingum stendur ekki ógn af neinum alþjóðlegum, pólitískum hættum, nema hugsanlega vegna tengsla þeirra við áðurnefnd bandarísk stjórnvöld. Undirritaður veit að hér finnast menn sem trúa því í fullri einlægni að hingað gætu komið fámennir hópar grettinna vígamanna vopnaðir Kalashnikov-rifflum og yfirtekið landið, ef ekki væri fyrir hið góða og vammlausa setulið sem hingað til hefur passað okkur. Þessir menn eru veruleikafirrtir, lifandi við rammskekkta heimsmynd sem rétta mætti af á örskammri stundu ef þeir fengjust til að hlusta á málefnaleg rök. Því miður er líkt og fyllt hafi verið upp í eyru þeirra með undirlægjuorðfæri hægrisinnaðra ríkisstjórna.
Eins og Valur Ingimundarson sagnfræðingur hefur nýlega bent á, þá hótuðu íslenskir ráðamenn því árið 2003 að rifta varnarsamningnum ef þoturnar yrðu fjarlægðar. Stundin er runnin upp; þoturnar eru að fara. Hvað ætla þessir ráðamenn að gera? Ætla þeir að bera höfuðið hátt á alþjóðavettvangi (til tilbreytingar) eða ætla þeir að halda uppteknum hætti og halda áfram að niðurlægja sjálfa sig og okkur hin með áframhaldandi þrælslótta sínum? Riftið bara samningnum! Hættið að láta okkur þurfa að skammast okkar frammi fyrir alþjóðasamfélaginu í hvert sinn sem þið krjúpið á kné. Hættið þessum undirlægjuhætti. Hættið þessum þrælsótta. Byrjið að láta eins og menn.
Með riftingu samningsins myndu Íslendingar aftur eignast þessa 400.000 ferkílómetra sem þessi erlendi her, sami her og er að myrða saklausa borgara í hrönnum annars staðar í heiminum, hefur lagt undir sig. Það er kominn tími til að loka sjoppunni fyrir fullt og allt.
