Ung vinstri græn
Pistlar

16.3.2006 Dögg Proppé Hugosdóttir

Við viljum ekkert helvítis stríð!!!

"Yes, yes, Mr. President Bush of course we will" sögðu Halldór og Davíð þegar Bandaríkjamenn ákváðu, í nafni guðs, að senda enn einu sinni stríðsvélina sína af stað. Þá þegar voru Halldór og Davíð sakaðir um undirlægjuhátt. Þeir töldu að stríðsvélin væri svo mikill vinur þeirra að andstaða Íslendinga við stríðsrekstur skipti þá engu máli. Það leynist engum að Halldór og Davíð vonuðu það innilega að vinur þeirra stríðsvélin yrði áfram hér á Íslandi.

Nú má sjá að stefna þeirra Halldórs, Davíðs og Bush, eins og fyrirfram var víst, var dæmd til glötunar frá upphafi. Bush heldur áfram að dæla bensíni á stríðsvélina, þvert gegn vilja Bandaríkjamanna og hefur ákveðið að færa stríðsvélina frá Íslandi til þeirra staða þar sem hún getur valdið þeim hörmungum sem henni var ætlað að valda.

Næsta laugardag gefst okkur tækifæri til þess að láta í ljósi okkar skoðanir á stríðsvélinni og stuðningi ríkisstjórnarinnar við þær hörmungar sem hún hefur valdið í okkar nafni. Nú höfum við tækifæri til þess að fagna brotthvarfi hersins og spyrna fótum gegn stefnu stríðs og mannlegrar eymdar, og í raun ber okkur skylda til þess að láta í ljósi skoðanir okkar því ríkisstjórninni er ekki treystandi til þess að vera málsvari þjóðarinnar.

Burt með allan her úr Írak, hefjum tafarlaust hjálparstarfsemi og tökum ábyrgð á því sem hinir heimsku stríðselskandi ráðamenn, morðingjar, í Bandaríkjunum eru búnir að gera með stuðningi okkar huglausu ríkisstjórnar ásamt ríkisstjórnum annarra landa.

Ekki í okkar nafni. Morðin, pyntingarnar og kúgunin eru ekki í okkar nafni en ábyrgðin er okkar. Klukkan þrjú á laugardaginn förum við á Ingólfstorg og sýnum hug okkar í verki. Það er okkar leið til að láta skoðun okkar í ljós, sýna ábyrgð og krefja íslensk stjórnvöld um stefnubreytingu.

Dögg Proppé Hugosdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica