Ung vinstri græn
Pistlar

9.1.2006 Elín Sigurðardóttir

Erum við að verða náttúrulaus?

Ég fór síðastliðið laugardagskvöld í Höllina ásamt þúsundum annarra til að taka afstöðu gegn frekari virkjunum og stóriðjuframkvæmdum á Íslandi. Þar var bent á það ásamt öðru að þjóðin stæði ekki á bak við lýðræðislega kjörna fulltrúa sína í virkjunar og stóriðjuframkvæmdum þeirra. Skoðanir almennings og skoðanir stjórnvalda stangast á. Það að stjórnvöld sniðgangi vilja almennings í landinu og ?hræðslu? þeirra við skoðanir almennings lýsir sér í tregðu stjórnvalda til að efla til þjóðaratkvæðagreiðslu í málinu. Aðrar Evrópuþjóðir sem við viljum gjarnan bera okkur saman við hafa ríka hefð fyrir að leyfa almenningi í landinu að tjá skoðun sýna á mikilvægum málefnum með þjóðaratkvæðargreiðslu. Það sýnir kannski hroka stjórvalda gagnvart almenningi að sniðganga þá lausn sem myndi endurspegla vilja þjóðarinnar með augljósum hætti. Ég vil því segja ?þjóðaratkvæðargeiðsla núna?. Þangað til er um að gera að blanda sér í baráttuna og lýsa andúð sinni á stífluvæðingu Íslands. Ég segi nei við stóriðju!!!!

Elín Sigurðardóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica