Jólaósk
Mín heitasta jólaósk er sú að allir geti notið jólanna í faðmi fjölskyldu og vina. Að allir geti átt hátíðlega kvöldstund með þeim sem þeir elska og skapað nýjar og ómetanlegar minningar. Þessi jólaósk mín hefur ekki enn ræst.Eins mikið og ég þrái að ósk mín verði veruleiki, veit ég að allsstaðar er fólk sem fær ekki að upplifa hina sönnu jólagleði.Sumir halda jólin í skugga sorgar, sjúkdóma, fátæktar, einmanaleika, kvíða og söknuðar.Hugur minn verður hjá þessu fólki um jólin og ég vona að allir gefi sér tíma til þess að senda þeim sem minna mega sín, þeim sem ekki munu eiga gleðileg jól hlýja strauma, og minna sig á í leiðinni að jafn dýrmætri jólagjöf og gleðilegum jólum ætti enginn að taka sem sjálfsögðum hlut. Gerum góðverk á jólunum, hugsum hlýlega til náungans og gerum um leið jólin gleðilegri fyrir alla.
Ég óska ykkur öllum gleði og friðar á jólum.
