Ung vinstri græn
Pistlar

5.12.2005 Dagur Snær Sævarsson

Þvermóðska Þorgerðar

Í fréttum sjónvarpsins síðastliðinn mánudag var frétt um samræmd stúdentspróf og aðgerðir nemenda vegna þeirra. Nýlega hefur verið stofnað svonefnt Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskóla, en markmið þess hefur aðallega verið það að berjast gegn styttingu náms til stúdentsprófs sem og samræmdum stúdentsprófum. Aukinheldur hafa kennarar jafnt sem nemendur mótmælt þeirri miðstýringu sem breytingarnar teikna til, en menntamálaráðherra lætur sér fátt um finnast.

Námið í tíunda bekk grunnskóla snýst einungis um að glósa sem mest fyrir samræmdu prófin, því þau eru oftast metin inn í framhaldsskólana. Af því leiðir að grunnskólinn verður einsleitur, og er sama hvaða grunnskóla þú sækir; alltaf skaltu læra það sama. Slíkt gerist mögulega með tilkomu samræmdra stúdentsprófa. Þeir framhaldsskólar sem leggja áherslu á listgreinar fækka jafnvel sínum einingum í listnámi til þess eins að fá góða útkomu úr samræmdum stúdentsprófum, en þau eiga vera einskonar mælikvarði á gæði skólanna.

Samfara þessum aðgerðum hefur sami ráðherra hafið undirbúning að skerðingu náms til stúdentsprófs. Nemendur og kennarar hafa mótmælt því einnig, en Þorgerður Katrín hlustar ekki á þau mótmæli, ekki frekar en annað. Hún bendir á ýmis rök í þessu sambandi og er hagræðing þeirra helst.

Dagur Snær Sævarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica