Ráðstefna eingöngu ætluð körlum
Fimmtudaginn 1. desember næstkomandi mun karlaráðstefna um jafnréttismál verða haldin í Salnum í Kópavogi. Það er Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, sem kallar til ráðstefnunanr sem eins og yfirskrift hennar gefur til kynna er eingöngu ætluð karlmönnum. Mig langaði að benda lesendum vefsíðunnar á þessa ráðstefnu og hvetja alla karlmenn til að mæta. Það er að mínu mati mikilvægt að karlmenn setjist niður og ræði stöðuna í jafnréttismálum út frá sínu sjónarhorni. Ef að karlmenn telja að á þeim sé brotið á einhvern hátt þá er það þeirra að benda á misréttið, rökstyðja það og berjast fyrir að því linni. Það eru mörg atriði sem krefjast umræðu sem snúa að karlmönnum og jafnrétti í samfélaginu. Til að mynda málefni feðra hvað varðar fæðingarorlof og rétt til umgengnis við börn sín. Að sama skapi finnst mörgum þörf á að huga að stöðu drengja innan menntakerfissins og slík ráðstefna er að mínu mati kjörin til að ræða hana.
Jafnréttismál hafa hingað til mest megins verið rædd út frá forsendum kvenmanna, þ.e. þörfinni á því að jafna hlut kvenna í samfélaginu. Með ofangreindri hvatningu er ég á engan hátt að rýra þá umræðu. Sú umræða sem hefur farið fram er gríðarlega þörf og hefur skilað miklu til samfélagsins þó það sé engan vegin nóg enn. Ég er sjálf femínisti og nýti hvert tækifæri til að berjast fyrir hagsmunum kvenna og vil í framtíðinni búa í samfélagi sem er jafnréttissinnað á öllum sviðum. Með því að skilgreina mig sem femínista kemur þó í ljós mín nálgun á málefnum jafnréttisumræðunnar, þ.e. ég kýs að berjast fyrir hagsmunum kvenna, mæðra og stúlkna innan menntakerfisins. Með því er ég ekki að segja að ég beri ekki hag karlmanna, feðra og drengja fyrir brjósti og vilji meina þeim að leita sér aukins réttar og betra lífs. Ég kýs einfaldlega að beina mínum kröftum að einum hagsmunahóp sem ég tel að eigi betra skilið og vona að karlmenn taki sig til, veki athygli á málefnum tengdum þeim og nái árangri á því sviði. Með því að skilgreina mig sem femínista er ég ekki að kljúfa samfélagið og berjast gegn körlum frekar en að með því sé ég að hunsa baráttumál samkynhneigðra, innflytjenda eða stúdenta. Þetta eru allt saman góð málefni sem ég styð að séu krufin, rædd og breytt í anda fulls jafnréttis.
