Tónlistarhöllin alræmda
Í nóvember 2005 skuldar Reykjavíkurborg 64 milljarða króna. Þessi skuldasöfnun hefur lengi átt sér stað, að miklu leyti sökum afkáralegra gæluverkefna. Það nýjasta er svo dýrt að í heildina kostar það landsmenn 33 milljarða króna. Ég er auðvitað að tala um væntanlega geimskipið í Reykjavíkurhöfn, Tónlistarhöllina svokölluðu.
Hugmyndin að tónlistarhúsi er ævagömul. Strax í kringum 1920 var talað um að byggja tónlistarskála í Hljómskálagarðinum en svo varð ekki. Í febrúar 2003 fékk menntamálaráðherra heimild ríkisstjórnar til að ganga frá samningum við Reykjavíkurborg um stofnun einkahlutafélags sem sjá myndi um byggingu og rekstur tónlistar- og ráðstefnuhúss. Mánuði síðar heimilaði borgarráð svo borgarstjóra að ljúka frágangi samninga við ríkið um stofnun einkahlutafélagsins. Austurhöfn ehf. var stofnuð sumarið 2003, einkahlutafélag ríkis og borgar, en eignarhluti ríkisins var 54% og borgarinnar 46%. . Í apríl 2004 auglýstu Ríkiskaup forval á Evrópska efnahagssvæðinu vegna byggingar, reksturs og hönnunar tónlistar- og ráðstefnuhúss, sem og hótels, við höfnina í Reykjavík.
