Ung vinstri græn
Pistlar

22.11.2005 Helga Tryggvadóttir

Stefnuleysi stjórnvalda í garð þjóðskólans

Mikil umræða um stöðu Háskóla Íslands hefur farið fram undanfarið, ekki síst í kjölfar skýrslu sem unnin var af European University Association (EUA) og birt var nýlega. Kemst EUA að niðurstöðu sem þarf ekki að koma neinum á óvart sem til þekkir: Háskóli Íslands er mjög góður skóli, eiginlega ótrúlega góður miðað við það fjársvelti sem hann þarf að glíma við af hálfu stjórnvalda.

Og hvað segja stjórnvöld? Þau fagna því hversu gott starf er unnið í Háskólanum (eins og það sé þeim að þakka) og fara síðan með gamla tuggu um að auknir fjármunir hafi nú verið látnir rakna til Háskólans á síðustu árum (sem verður þó seint talið til afreka, í ljósi þess að nemendafjöldi Háskólans hefur aukist um meira en helming á síðustu átta árum).

Það er hins vegar alveg ljóst að ef Háskólinn verður áfram látinn búa við svipaðan fjárskort og nú er mun það að lokum koma niður á þeirri menntun sem hann getur boðið upp á. Þetta er sérstaklega alvarlegt ef litið er til þeirrar staðreyndar að margar deildir Háskólans eiga nú í beinni samkeppni við einkarekna skóla, skóla sem auk þess að fá sama fjárframlag frá ríkinu á hvern nemanda og HÍ, mega innheimta lánshæf skólagjöld. Þannig að það er í raun ríkissjóður, í gegnum Lánasjóð íslenskra námsmanna, sem lánar fjölda nemenda einkarekinna skóla fyrir skólagjöldunum.

Helga Tryggvadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica