Ung vinstri græn
Pistlar

21.11.2005 Skúli Jón Kristinsson

„Á meðan vindurinn blæs í vestri?“

Bandaríkjaforseti er nú staddur í Kína. Erindi hans þangað austur er að eiga spjall við Hu Jintao, forseta ?alþýðulýðveldisins?, um landsins gagn og nauðsynjar. Helsta mál á dagskrá hjá þeim eru efnahagsmálin, þ.e. hin gríðarlegi viðskiptahalli sem er milli landanna. Hins rísandi heimsveldis og þess fallandi. Bush ætlar þó ekki bara að tala um viðskipti og efnahag við starfsbróður sinn. Eins og aðrir vestrænir leiðtogar sem kíkja í diplómatískar heimsóknir til Kína, bendir Bush á ýmislegt sem betur mætti fara í mannréttindamálum að hans mati, og krefst úrbóta, allt þó í hinni mestu vinsemd. Eins og fyrri daginn munu kínverskir valdhafar lofa bót og betrun þótt minna verði um efndir.

Ekki það að athugasemdir Bush séu ekki fyllilega réttmætar og góðra gjalda verðar. Kínversk stjórnvöld eru ekki hátt skrifuð hjá undirrituðum og eiga ekki skilið hrós fyrir eitt eða neitt. Málið er bara það að yfirborðskennt orðagjálfur sem þetta breytir aldrei neinu, jafnvel þótt það komi úr munni Bandaríkjaforseta og hann meini það sem hann segi. Það þykir undirrituðum líka hin argasta hræsni og tvískinnungur að amast gegn ritskoðun á einum stað, en hvetja síðan til hennar annars staðar. Slíkt er hentistefna af verstu sort.

Skúli Jón Kristinsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica