Hvað vill Ingibjörg?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur farið mikinn í fjölmiðlum undanfarna daga og vikur, enda á hún einstaklega greiða leið í fjölmiðla og synd væri að nýta sér það ekki. Fyrir rúmri viku skrifaði hún blaðagrein þar sem hún vandaði VG ekki kveðjurnar og virtist ekki lítið reið útí okkur vegna endaloka R-listasamstarfsins. Undirritaður vonar að hún jafni sig fljótlega á því, enda eru langrækni og heiftýðgi sjaldnast vænleg til árangurs í pólitísku samstarfi. En nú er ekkert samstarf þarna á milli þessa stundina, og svo er að skilja á Ingibjörgu að þannig vilji hún hafa það.
Ingibjörg virðist vera meira en lítið fúl úti VG. Sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hún hati VG. Það hlýtur að valda öllum áhugamönnum um velferðarstjórn á Íslandi áhyggjum að formaður annars flokksins sem vill kenna sig við velferð hati hinn flokkinn. Það hljómar eins og stóreflis ljón í vegi téðrar velferðarstjórnar. Hvað vill Ingibjörg, fyrst hún vill ekki velferðarstjórn?
Jú, undanfarna daga hefur hún boðað til sóknar á vinstri vængnum til að hala atkvæði af VG, en næstum samtímis hefur hún hefur stigið í vænginn við forkólfa LÍÚ, sem hafa jú alltaf reynst bestu vinir litla mannsins. Svo ítrekaði hún að Sjálfstæðisflokkurinn væri höfuðóvinurinn og andstæða Samfylkingarinnar, svart gegn hvítu, illt gegn góðu. Að því búnu vatt hún kvæði sínu í kross og fór að tala um að standa vörð um miðjuna í íslenskri pólitík. Flókið?
