Ábyrgðarleysi fjölmiðla
Umræða um fjölmiðla og það efni sem þeir birta hefur verið mikið i deiglunni undanfarið. Spurningar um siðferði blaða- og fréttamanna hafa vaknað hjá mörgum. Hvaða efni má birta með leyfi hvers og svo famvegis. Ég lenti í leiðinlegri lífsreynslu þegar ég var að horfa á Ísland í dag um daginn sem sýndur er á eftir kvöldfréttum á sjónvarpsstöðinni stöð 2. Þar hófust umræður um umferðarslys á Hverfisgötu í Reykjavík þar sem keyrt var á ungan mann og fjöldi fólks í miklu uppnámi gerði störf lögreglu og sjúkraflutningamanna erfið.
Allt í einu er klippt yfir í myndir frá slysstað þar sem nærmyndir eru teknar af fórnarlambinu og öðrum viðstöddum. Myndatökumaður "elti" sjúkraflutningamenn með börur út úr sjúkrabílnum og að þeim slasaða. Þessi æsifréttamennska þótti mér svo ósmekkleg að ég hringdi í síma fréttastofu stöðvar 2. Þar svaraði mér kona sem útskýrði fyrir mér að Ísland í dag væri sér þáttur og ekki á ábyrgð fréttastofunar.
