Breytingar núna, strax í gær!
Ávarp á landsfundi Vinstri grænna, þann 21. október 2005
Kæru fundarmenn,
Núna þarf að breyta. Það á við um flestar hliðar þjóðfélagsins en tvær hliðar þess eru mér hugleiknari en aðrar þótt ég hafi brennandi áhuga á þjóðfélaginu í heild sinni
Það eru umhverfismál og jafnréttismál, málefni sem Vinstrihreyfingin- grænt framboð setur á oddinn. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að ég tilheyri þeim mjög svo ágæta flokki.
Varðandi umhverfismálin þá finnst mér mikilvægt að minnka mengandi útblástur, nota umhverfisvæna orkugjafa, auka endurvinnslu, vernda náttúruna og hlúa að henni. Til þess eru margar leiðir sem allar hafa í för með sér breytingar á lifnaðarháttum fólks.
Mengun minnkum við t.d. með takmarkaðri notkun einkabíla. Getur það falið í sér samþjöppun í einkabílunum, stórfelldri notkun strætisvagna og reiðhjóla auk meiri göngu. Þessu markmiði náum við með því að gera alemenningi kleift að taka strætó, halda göngu- og hjólreiðastigum við og verðalauna þá sem nota umhverfisvæna orkugjafa. Gæti það falið í sér skatta- eða tollaniðurfellingu eða gjaldfrjáls bílastæði.
Endurvinnslu aukum við með því að auðvelda fólki endurvinnslu. Höfum ?græna? ruslatunnu við hvert hús og jafnvel auka ruslagat í nýbyggðum blokkum svo fólk geti hent lífrænu rusli þar í. Einnig skulum við lengja opnunartíma Sorpu og hafa ruslagáma víðar.
Þessar ráðstafanir og margar fleiri eru mikilvægar til að tryggja komandi kynslóðum gott umhverfi, hreina náttúru og eðlilegt veðurfar.
