Ung vinstri græn
Pistlar

15.10.2005 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Stríðsmaður guðs

Ekki veit ég hvort það hefur verið sjálfur Guð almáttugur sem kom þeirri hugmynd inn í kollinn á George Bush að það væri góð hugmynd að beita neitunarvaldi til þess að lög um réttindi stríðsfanga öðlist ekki gildi í Bandaríkjunum. En eitt er alveg víst, það er einhver alveg sérstakur drulluhali sem stendur á bak við það.

Bush gæti jafnvel hafa fengið þessa ægilega sniðugu hugmynd alveg sjálfur, án þess að ráðfæra sig við Guð fyrst. Hann er kannski hættur að heyra í Guði? Ég skil heldur ekki hvernig Guð hefur nennt að tala við hann til að byrja með.

En Bush neitar alla vega núna að hafa nokkurn tíman talað við Guð, sem bendir til þess að það sé eitthvað ósætti þarna á milli. Bush kennir kannski Guði um að fylgi hans meðal kjósenda er á hraðri niðurleið, það er svo auðvelt að koma ábyrgðinni yfir á Guð. T.d. var það náttúrulega Guðs hugmynd að ráðast inn í Írak, samkvæmt Bush. En forseti Bandaríkjana er smám saman að komast að því sem allar manneskjur með hærri greindarvísitölu en simpansi voru búnar að fatta, að þetta var í raun ekki svo sniðug hugmynd...

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica