Byggðavæn ferðaþjónusta!
Óspillt og fögur náttúra okkar Íslendinga heillar flesta þá er koma hingað til lands. Byggðalög víðsvegar um land hafa, með misjöfnum árangri, leitað allra leiða við að auka og efla ferðaþjónustu á sínum svæðum. Þegar við ferðumst um landið að sumri þá er allt í blóma, ferðamenn í hundraðatali, sölutjöld, kaffihús, minjaverslanir o.fl. En síðan fer að hausta og ferðamönnum fækkar.. Hvað þá?? Hvað verður um allt fólkið sem starfaði við ferðamannaiðnaðinn?? Hvað gerir allt fólkið sem rak gistiheimilin, kaffihúsin, minjasöluna, söfnin o.fl.??? Ég held að það megi skipta þessu fólki í þrjá hópa.
1.Námsmenn, unglingar og aðrir sem voru einungis í leit að tímabundnum störfum.
2.Rekstraraðilar sem hafa tekjur af ferðaþjónustu auk þess sem stunduð er önnur atvinna eða atvinnurekstur. T.d. Ferðaþjónustubændur.
3.Rekstraraðilar sem loka öllu að haustinu og flytja burt af svæðinu.
