Ung vinstri græn
Pistlar

10.10.2005 Brynja Björg Halldórsdóttir

Orka til fyrirmyndar

Svíar hafa lengi farið með forystu í umhverfismálum ( kjarnorkuveri þeirra að undanskildu) og sýnt öðrum þjóðum gott fordæmi. ?Endurnýjun? virðist vera lykilorð í umhverfisverndarstefnu þeirra enda eru færri þjóðir duglegri við þá iðju.

Í Svíþjóð búa rétt um níu milljónir manna. Bílanotkun þarlendis er frekar almenn en mun minni en á Íslandi en stætisvagna- og hjólanotkun mikil. Svíar stefna engu að síður á að verða óháðir notkuna jarðefnaeldsneytis árið 2020. Það kom fram í ræðu Görans Perssons, forsetisráðherra við þingsetningu sænska þingsins nýlega.

Eins og flestir vita, veldur útblástur frá bílum auknum gróðurhúsaáhrifum og eyðingu ósons í andrúmsloftinu. Hækkun hitastigs á jörðu hefur hækkað hratt á síðustu árum; tilfellum húðkrabba, augnsjúkdóma og sjúkdóma í ónæmiskerfinu fer ört fjölgandi auk þess sem jökulbráðnum hefur verið mun meiri en góðu hófi gegnir. Mikil notkun jarðefnaeldsneytis er því augljóst áhyggjuefni.

Brynja Björg Halldórsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica