Bakland og önnur pólitísk tískuhugtök
Pólitískar ræður og pólitískt tal virðist vera háð tískusveiflum á sama hátt og fataval og hártíska landans. Nú á síðustu misserum í sambandi við umræður um áframhaldandi R-lista samstarf og nú í komandi prófkjörum og forvölum fyrir borgarstjórnarkosningar á næsta ári hefur nýtt tískuorð litið dagsins ljós...BAKLAND.
Margir pólitíkusar vísa oft í þetta hugtak. Ég hef því oft velt fyrir mér hvað þetta bakland sé og hverjir séu í því? Á baklandið við um almenna flokksmenn og ef svo er hvernig er leitað til þeirra? Eða er baklandið fallegra orð yfir hið afar neikvæða orð KLÍKA? Hvað eiga pólitíkusar nákvæmlega við þegar þeir ræða um hið margumtalaða bakland? Er til einhver skilgreining á því hverjir tilheyra því og hverjir ekki? Ég hef til dæmis oft velt fyrir mér hvort að ég sjálf tilheyri þessu útvalda baklandi? Þetta er um margt farið að mynna mig á Ungt fólk umræðuna sem pólitíkusar komu af stað fyrir þó nokkrum árum. Menn voru yfirlýsingaglaðir í pólitískum ræðum um ungt fólk og alhæfingar voru algengar. Ungt fólk var djúpt sokkið í hin og þessi vandamál, ráðstefnur voru haldnar um málefni ungs fólks. Ég velti oft fyrir mér um hvað væri nákvæmlega verið að tala. Er ungt fólk fólk á aldrinum 0-10 ára? Eða 10-20 ára?
