Ung vinstri græn
Pistlar

4.10.2005 Emil Hjörvar Petersen

Ólýðræði viku hverja

Flestir myndu telja að við búum í þjóðfélagi þar sem lýðræði er við lýði. Ef nánar er á litið er nánast daglega hægt að sjá á forsíðum dagblaða leikreglur lýðræðis brotnar. Fulltrúar þjóðarinnar í ríkisstjórn Íslands sitja, strjúka vömbina og stjórna landinu með hálf fasískum vinnubrögðum. Hér er frekar djúpt í árina tekið enda ástæða til. Við skulum líta nánar á nokkra atburði síðastliðinnar viku, förum hratt yfir sögu (sleppum Baugsmálinu, þó það ætti líka heima hér að vissu leyti) og veltum okkur fyrir því hvað sé ólýðræðislegt í þeim efnum.

Davíð hætti og honum var fengið sæti seðlabankastjóra þar sem launin voru hækkuð svívirðilega mikið. Árni Mathiesen fékk fjármálaráðuneytið, Geir H. Haarde fékk utanríkisráðuneytið og ásamt Halldóri staðfesta þeir endanlega umsókn og framboð okkar að aðild að Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kjör Heimdallar, ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, var eitthvert það ólýðræðislegasta í sögu ungliðahreyfinga stjórnamálaflokka. Óþarfi er að útlista hér frekar hvernig það fór fram því formaður UVG í Reykjavík, Dagur Snær, hefur fjallað um málið. Þessi þrjú mál tengjast raunverulegri frelsiskerðingu og ólýðræði. En hvernig þá?

Emil Hjörvar Petersen

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica