Þessi ríkisstjórn er roooosalega þreytt
Stjórnarliðar segja stundum að málflutningur stjórnarandstöðunnar einkennist af málefnafátækt. Ég held að ein af ástæðunum fyrir þessum fullyrðingum stjórnarliðanna sé sú að það er bara svo lítið að gerast hjá ríkisstjórninni. Jújú, þeir lækka skatta, tókst loksins að selja Símann og reyna að setja lög á fjölmiðla. Er metnaðurinn ekki meiri en þetta? Hvar er allur þessi fjöldi af málefnum sem stjórnarliðar þykjast hafa á bakvið sig?
Nú kynni einhver stjórnarliðinn að benda á allt það frábæra sem verður gert fyrir peningana frá sölu Símans. Ekki vill ég kvarta yfir byggingu hátæknisjúkrahúss en það var aldrei ástæðan fyrir sölu Símans, né heldur kosningaloforð hjá stjórnarflokkunum. Það var hugdetta hjá Davíð Oddssyni eftir að hann þurfti sjálfur að dvelja á sjúkrahúsi. Ekki dettur stjórnarliðum í hug að lækka komugjöld eða annan kostnað sem lendir hvað harðast á þeim sem minna mega sín. Ó nei. Næst mest af peningunum frá sölu Símans, sem varið verður í framkvæmdir, fer í malbik fyrir alla bílana út um allt. 15 milljarðar í malbik og 1 milljarðar í búsetuúrræði fyrir geðfatlaða. Það segir manni eitt og annað um forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar.
