Óheiðarleg vinnubrögð
Kosningabarátta stjórnmálaflokkanna fara að hefjast á næstu vikum og hefur hún nú þegar tekið á sig mynd í aðdraganda prófkjara flokkanna. Einstaklingar keppast við að ná sætum á framboðslista til sveitastjórnarkosninga og er baráttan misheiðarleg og málefnaleg. Til að mynda hefur Gísli Marteinn Baldursson engin málefni fyrir utan stefnu Sjálfstæðisflokksins. Sú stefna er svo víðtæk að innan þess flokks fóta sig margir hópar með mismunandi áherslur. Í ungliðastarfinu eru það íhaldsmenn sem takast á við frjálshyggjumenn, en maður að nafni Bolli Thoroddsen hefur verið í forsvari fyrir íhaldið í Heimdalli seinasta árið.
Heimdallakosningar hafa hingað til verið yfirborðskenndar og grimmar, þar sem málefnin skipta engu máli heldur keppast fylkingar við að smala sem flestum inn í flokkinn til að láta kjósa sig. Kosningarnar í ár eru engin undantekning. Vilhjálmur Þ. og Bolli endurtóku sandkassaleikinn enn eitt árið.
