Smá um Súdan!
Það hefur ekki verið leiðinleg samkunda sem kom saman á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna (S.Þ.) nú fyrir nokkrum vikum. Skemmtikraftarnir voru ábyrgðarmenn frá öllum löndum sem teljast eitthvað. Halldór Ásgrímsson, Putin, Blair, Bush og fleiri héldu uppi ræðum um að eitthvað þyrfti nú að gera varðandi hryðjuverk í heiminum. Þessir miklu herrar hafa vafalaust ekki lifað á hrísgrjónum eða brauði einu saman á meðan á ráðstefnunni stóð.Ætli þeir hafi minnst þess að um þessar mundir voru 11 ár liðin frá blóðbaðinu í Rúanda árið 1994. Þar voru yfir 800.000 manns drepnir, flestir með sveðjum. Þá lokaði heimsbyggðin augunum og allt virðist stefna í það sama núna, þrátt fyrir setninguna: Aldrei aftur! (var reyndar líka sögð eftir helförina í seinni heimsstyrjöldinni).
