UVG í Reykjavík og V-listi, spennandi kosningavetur
Ræða fráfarandi formanns Ungra vinstri grænna í Reykjavík, Freys Rögnvaldssonar, á aðalfundi UVGR þann 27.ágúst síðastliðinn.
Kæru félagar
Fyrsta starfsár Reykjavíkurfélags Ungra vinstri grænna er nú að baki og því fer fjarri að það hafi verið tíðindalaust. Öðru nær, því að síðastliðið ár hefur verið eitt það róstusamasta í borgarpólitíkinni svo árum skiptir. Við munum til að mynda öll Þórólfsmálið svokallaða þar sem að stoðir R-listans skulfu all hressilega og mörg þung orð féllu. Það mál tókst okkar félögum í borginni að tækla listavel og áttum við ungliðar öfluga aðkomu að því. Sátum við margann fundinn þar sem að rætt var um leiðir og aðgerðir sem að væru færar til að landa því máli svo vel færi. Ungliðar lágu ekki á skoðunum sínum og gerðu sig gildandi í virkri ákvarðanatöku innan flokksins.
Það er gleðilegt að segja frá því að stofnun félagsins og starfsemi á liðnu ári hefur einmitt orðið til þess að nú er enn frekar hlustað á, og tekið tillit til sjónarmiða yngra fólks í flokknum. Í það minnsta er það mín upplifun að allir hafi séð hversu mikilvæg stoð ungliðafélögin eru flokknum. Samningaviðræðurnar um R-listann eru gott dæmi um það. Þar stóð Dagur Snær, varaformaður félagsins, í eldlínunni í samninganefndinni um framtíð samstarfsins og stóð sig með miklum glæsibrag. Var það mál manna að þar hafi farið harður samningamaður með málefnin á hreinu en jafnframt sanngjarn. Auk þess tók ég sjálfur þátt í stefnumótun og undirbúningsvinnu fyrir þessar viðræður sem formaður félagsins. Það sýndi sig þegar á reyndi að hlustað er á málflutning ungliða og sóst eftir kröftum okkar. Starfsárið hefur því að mínu mati orðið til þess að eldri félagar okkar hafa fengið að sjá hvílíkt afl er í ungliðahreyfingunni og hversu miklu máli skiptir að rödd ungs fólks fái að heyrast.
