R-listinn kvaddur
Þáttaskil urðu í löngum og ströngum viðræðum milli R-listaflokkanna í fyrradag, þegar viðræðunefndin hætti störfum og skilaði umboði sínu. Ekki náðist samkomulag milli nefndarmanna um tillögurnar og var það grundvallaratriði sem menn sættust ekki á, en það var jafnræði milli flokkanna og sjálfstæði þeirra.
Nefnd Vinstri-grænna lagði fram tillögu um að í átta efstu sætin væru þrír menn frá krötum og Vinstri-grænum og tveir frá Framsókn sem fengju þá níunda og tíunda mann. Framsóknarmenn hafa löngu sæst á þessa tillögu og kom hún upphaflega frá þeim, þó þannig að ekki var gert ráð fyrir níunda og tíunda manni sem framsóknarmanni.
Hugmyndir Samfylkingarinnar lýsa þeim sjálfum eins vel og hægt er. Þau vilja opið prófkjör og kosið verði eftir hólfum þannig að í sex efstu sætunum er jöfn skipting en í sætum 7-10 verði hver flokkur með einn fulltrúa þannig að sæti sjö og átta verða keppnissæti. Jafnframt leggja þau til að efsti maður á þessum lista verði borgarstjóra svo í raun er þetta leiðtogaprófkjör samhliða röðun á listann.
Sýndarlýðræðishugmyndir og græðgi Samfylkingarinnar mun ganga frá þeim einn daginn. Nái tillaga Samfylkingarinnar fram að ganga er verið að búa til auglýsinga- og vörumerkjalista þar sem auglýsingar yrðu meira áberandi en málefni. Slíkt fékk almenningur að sjá í kosningabaráttu Samfylkingarinnar til Alþingis árið 2003. Ekkert bendir til þess að Samfylkingarmenn myndu samþykja að takmörk yrðu sett á auglýsingar. Vinstri-græn taka einfaldlega ekki þátt í slíkum skrípaleik. Því eru popúlistarnir í Samfylkingunni á heimavelli hvað það varðar, svo ekki sé minnst á Framsóknarmenn sem hafa fengið verðlaun fyrir slíkt.
