Ung vinstri græn
Pistlar

7.7.2005 Ugla Jóhanna Egilsdóttir

Af hverju skjótum við hann ekki bara?

(Lesið upp á Talstöðinni 4. júlí.)Í sannleika sagt held ég að ef ég ætlaði mér að þylja upp allt sem ég veit eða hef heyrt um Afríku þá gæti ég eflaust skrifað tæmandi lista og talið upp í þessum pistli. Ekki langur listi það. Helst gæti ég nefnt bíómyndirnar sem Gérard frönskukennari lét okkur horfa á, kennsluefnið um Tansaníu þegar hún var tekin fyrir í þriðja bekk í grunnskóla, blogg Afríkufara og einstaka greinar á stangli sem maður veitir hvort eð er sjaldnast athygli. Enda Afríka langt, langt í burtu og einstaka sinnum efast ég í raun og veru um tilvist hennar. Stundum held ég að ég deili þessum efasemdum mínum með meirihluta fólks. Fólk á það til að segja sögur af ferðum sínum til þróunarlanda.

Þar eru betlarar en margir halda því fram að maður eigi ekki að gefa betlurum pening af því flestir þeirra notfæri sér gæsku túrista og séu í raun moldríkir og hverfi á braut að vinnudegi loknum oft á limósínum. Það fylgir aldrei sögunni hugleiðing um það hvers vegna velstætt fólk ætti að líta á betl sem arðbæra vinnu. Auk þess ef götubörn og betlarar í þróunarlöndum eru í raun og veru ríkt fólk hvar er þá fátæka fólkið?Kannski eru þessar efasemdir að hluta til fjölmiðlum að kenna sem alla jafna fjalla meira um kjölfestufjárfesta, gæludýr fræga fólksins eða harðlínumenn heldur en erfiðleika þróunarlandanna.

Reyndar fékk Tsunami töluverða athygli en í því tilviki var líka hægt að skella skuldinni á ofsafengið skap jarðarinnar, lélegan viðvörunarbúnað eða Guð allt eftir hentisemi. Venjulega er nefnilega hægt að rekja vandamálin til ofríkis vestrænna landa. Og auðvitað skellum við skollaeyrum við því, upplifum það sem órökstuddar martraðir og efumst um að þetta sé satt.Um daginn var ég að ræða við mann um þróunarhjálp. Hann hafði efasemdir um réttmæti þróunarhjálpar og sagði: - Er ekki bara betra að börnin deyi heldur en lifi þegar þau búa við svona bág kjör?

Ugla Jóhanna Egilsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica