Ung vinstri græn
Pistlar

4.7.2005

Dögg til forystu í Reykjavíkurborg

Á dögunum ákváðu Vinstri-græn í Reykjavík að velja frambjóðendur sína til komandi borgarstjórnarkosninga með forvali innan flokksins. Eru þetta mikil tíðindi þar sem að frambjóðendur flokksins hafa fram að þessu verið valdir af uppstillingarnefndum. Að mínu mati var löngu orðið tímabært að hinn almenni flokksfélagi fengi með beinum hætti að koma að röðun á lista og því tel ég að með þessu hafi verið stigið gæfuspor. Ekki eru síður tíðindi að í forvalsreglur þessar var jafnframt bundið að kynjaskipting skyldi vera jöfn, þ.e. að listi flokksins yrði svokallaður fléttulisti. Því ber að fagna og er slíkt í anda þeirra jafnréttissjónarmiða sem að flokkurinn hefur unnið eftir.

Nú munu því hefjast umræður um hverjir það séu sem að eigi að leiða flokkinn til sigurs í komandi kosningum. Vil ég með þessari grein skora á flokkssystur mína Dögg Proppé Hugosdóttur að gefa kost á sér forystusveit okkar í borginni. Ég hef haft þá ánægju að vinna mikið og náið með Dögg á undanförnum árum og er sannfærður um að þar fer gríðarlega öflugur talsmaður flokksins. Sérstaklega hefur verið skemmtilegt að fylgjast með því hvernig hún sem starfandi formaður Ungra vinstri-grænna hefur umbreytt starfi ungliðahreyfingarinnar og komið með mikinn kraft inn í starfið. Jafnframt hefur hún unnið fjöldann allan af trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á undanförnum árum og farist það vel úr hendi.

UVG

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica