Kenjóttir Krakkar
Fyrir nokkru birtist í Morgunblaðinu grein eftir þrjá meðlimi í ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar þar sem ríkjandi orðræða um ungliða í flokknum er gagnrýnd. Þrátt fyrir að ungt fólk virðist vera í tísku á mörgum sviðum virðist það nefnilega ekki vera viðurkennt af öllum að ungt fólk eigi að hafa áhrif í pólitík. Það virðist þó vera sjálfsagt að láta ungliða um það að undirbúa landsfundi með allri tilheyrandi vinnu en það að ungliðar vogi sér að reyna að hafa áhrif á það hver sé kosinn í ákveðin embætti er túlkað sem ósvífni og jafnvel ólýðræðislegt. Undirrituð fylgdist með þeirri orðræðu sem fór fram eftir landsfund Samfylkingarinnar og er greinarhöfundum sammála. Ummæli eins og að heilu bílfarmarnir af krökkum hafi verið keyrt á staðinn eða að flokknum sé stjórnað af konum og krökkum fara í skapið á mér, jafnvel þótt verið sé að ræða um Samfylkinguna.
