Ung vinstri græn
Pistlar

9.6.2005

Samtarfur R-listans

Í kvöld birti RÚV frétt um samtarf R-listans og Unga Vinstri Græna í Reykjavík. Ætla mætti að fréttin hafi verið samin af fjöllistamanni eða jafnvel trúð, þar sem innihald hennar var súrrealískara en fóstbræðraþættirnir sálugu. Á fréttinni mátti skilja að einhverskonar tarfur, samtarfurinn, hefði hlaupið í R-lista samstarfið og Vinstri Græn væru bjartsýn á þennan tarf. Segir þá í fréttinni: ?Vinstri grænir virðast einnig bjartsýnni á samtarf R-listans en áður en þó hefur ungliðahreyfing flokksins hótað sérframboði ef R-listinn býður fram aftur.?

Hvorki hafa UVG né UVG í Reykjavík lýst þessu yfir og væri það reyndar sprenghlægilegt ef slíkt myndi gerast. Undirritaður getur ekki séð fyrir sér tíu ungmenni fara í klofningsframboð frá VG í næstu sveitastjórnarkosningum án þess að það líti út eins og skrípaleikur. Það er þó ekki þar með sagt að það sé hlægilegt að ungt fólk bjóði fram í kosningum, þvert á móti. Það liti hins vegar þannig út fyrir UVG að á ferðinni væri óþægir krakkar á gelgjuskeiði, ef klofningsframboð kæmi frá ungu fólki úr flokki sem telur ekki meira en 9% í alþingiskosningum.

UVG

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica