Ung vinstri græn
Pistlar

6.6.2005 Anna Tryggvadóttir

Hagkvæmnisverðlaun menntamálaráðherra

Undanfarna daga höfum við vart haft undan að lesa um framúrskarandi námsmenn á síðum dagblaðanna. Fréttir af góðum námsárangri eru árviss viðburður, eins viss og koma lóunnar, enda stúdentaútskriftir á hverju vori þar sem nokkrir einstaklingar eru alltaf valdir úr fjöldanum og verðlaunaðir fyrir góðan námsárangur. Á sama tíma fylgjumst við með umræðunni um styttingu námstíma til stúdentsprófs.

Rök menntamálaráðuneytisins með styttingu námstíma til stúdentsprófs hafa oft komið fram. Líklega er ekki nauðsynlegt að tíunda þau öll á þessum vettvangi, nema bara til að benda á að þau snúast ekki um nám og námsárangur. Eingöngu er einblínt á hagkvæmnina, hvort sem það er sparnaður í rekstri skólanna eða hagkvæmnin sem næst fram við að koma táningum sem fyrst út á vinnumarkaðinn.

Þessi rök eru mjög í stíl við flest sem ríkið hefur komið fram með í menntamálum á undanförnum árum. Stór hluti umræðurnnar um háskólastigið snýst til dæmis um peninga, sem kristallast mjög í hinum margumrædda fjárhagsvanda Háskóla Íslands. Úti í samfélaginu hafa margir vart haft undan við að gagnrýna skólann fyrir slæman rekstur sem étur upp peninga skattgreiðenda. Lítið er aftur á móti rætt til dæmis um kennslu og tilhögun hennar til að mennta nemendur sem best, nema kannski aðeins innan háskólasamfélagsins sjálfs. Í öllu falli er það ekki umræða sem ?venjulegu fólki? finnst eiga við sig.

Anna Tryggvadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica