Ung vinstri græn
Pistlar

6.5.2005 Kári Páll Óskarsson

Óverjandi málstaður

Mannréttindi eru sígildur málaflokkur. Þar hefði maður trúað að flestir sem eru eitthvað pólitískt þenkandi og búa í vestræna lýðræðisríkinu Íslandi gætu verið sammála. Enginn pólitíkus myndi segjast vera á móti mannréttindum. Enginn pólitíkus myndi segjast vera ósammála Genfarsáttmálanum eða Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. En menn verða dæmdir af verkum sínum, ekki bara orðum.

Málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands hafa verið flutt til framkvæmdavaldsins. Hvers vegna? Nú, vegna hagræðingar, auðvitað. Jaaá, auðvitað, hagræðing. Massíf hagræðing, vegna þess að þeir ætla að leyfa skrifstofunni að éta það sem úti frýs. Ekki er hún dýr í rekstri, því það sem utanríkisráðuneytið ætlar að synja henni um er tæpar 6 milljónir. Kaupin á teikningum Sigmunds kostuðu 18 milljónir, svona til að gefa okkur smá samanburð svo við sjáum hvernig þessi ríkisstjórn kýs að forgangsraða hlutunum. Hvernig ber að skilja þetta? Er þetta bara einhver skrípamynd af ríkisstjórn? Hvernig er hægt að taka þessa menn alvarlega?

Kári Páll Óskarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica